ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.0° 8m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

ÍSLENSKA VAXTALÝÐRÆÐIÐ

14:45 › 18. febrúar 2010

Eftir því sem ég kemst næst vildi upphaflegu samningamennirnir íslensku í Icesave málinu ekki breytilega vexti.  Vextir voru nánast engir þegar bankakerfið féll, en samningamenn óttuðust að þeir kynnu að hækka, jafnvel hratt á næstu misserum og árum.
Þannig var á endanum samið um 5,55 prósenta fasta vexti af Icesave-skuldbindingunum. Reyndar er hægt að endurfjármagna Icesave-skuldbindingarnar og greiða upp lánin á 5,55 prósenta vöxtunum bjóðist önnur hagstæðari.


Kosturinn við breytilega vexti er að þeir eru lágir nú. Í rauninni geta þeir aðeins hækkað á næstu árum vegna þess hve lágir þeir eru nú. Að sama skapi er líklegt að þegar þeir hækka verði búið að greiða niður höfðustól Icesavelánanna (ábyrgðarinnar) til muna.
Þannir er veðjað á lága vexti af hárri upphæð og háa vextir af lægri upphæð.


Bjarni Ben. Og Sigmundur Davíð hafa með leyfi forseta Íslands, Ögmundararmsins í VG  og InDefence fallist á að greiða lágmarks tryggingarupphæðinna samkvæmt regluverki ESB eða 20.887 evrur fyrir hvern reiking sem skríður yfir þá upphæð.
Þeir hafa líka fallist á að forsenda árangurs nú sé sú að forysta íslensku stjórnmálaflokkanna gangi samhent til verks.
Þeir viðurkenna sem sagt eftir allan þennan tíma að ábyrgð Íslands nemi 700 milljörðum króna.
Þeir heita því sem sagt að vinna gegn sundurlyndi um málið í Íslenskum stjórnmálum og ætla nú að fylgja Steingrími og Jóhönnu að málum.
Því annars hlusta Hollendingar og Bretar ekki lengur á óskiljanleg íslensk stjórnmál.


Það er eins gott að Bjarni Ben. komi með að minnsta kosti 32 milljarða króna afslátt af Icesave skuldbindingunum eftir leiðindin í heilt ár. Það er nákvæmlega sú upphæð sem íslenskir skattgreiðendur þurftu að greiða í vexti og verðbætur í fyrra vegna Davíðs Oddssonar og falls Seðlabankans.
Hann ætti að hugleiða það áður en lengra er haldið að hrein skuld íslenskra skattborgara vegna bankanna og gjaldþrots Seðlabankans er hátt í 500 milljarðar króna.
Það er ekki til neitt þrotabú Landsbankans  til þess að draga úr því höggi!

Fái þessi leiksýning falleinkunn er eins víst að undan Sigmundi Davíð fjari innan Framsóknarflokksins.
Og æ færri koma auka á framtíðarforingja Sjálfstæðisflokksins  í Bjarna Ben.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?