Ögmundur Jónasson þingmaður VG leggur út af forsíðu DV um helgina þar sem fyrirsögnin var „Grunuð“.
Ögmundur vísar í DV á vefsíðu sinni og segir: „Nú hef ég ekki séð grunsemdirnar útlistaðar. En ég vara við því að búa til glæpamenn úr velviljuðu og heiðarlegu fólki sem kann að hafa unnið sér það til saka að hafa sýnt fyrirhyggjuleysi, andvaraleysi - augljóst nú eftirá en ekki endilega þá. Yfirsjónarbrot eru ekki sama og ásetningsglæpir. Það truflar mig að svo virðist sem einkavæðing bankanna og samkrullið við stjórnmálin hafi ekki verið tekin til rannsóknar á sama tíma og umræddir einstaklingar eru leiddir fram fyrir alþjóð. Förum varlega í fordæmingum!“
Ég bendi í fyrsta lagi Ögmundi á grein í DV í dag um samkrull stjórnmála og auðmanna um leið og ég tek undir með honum um rannsókn á einkavæðingu bankanna.
Í öðru lagi vil ég benda Ögmundi á eftirfarandi orð Páls Hreinssonar formanns rannsóknarnefndarinnar um síðastliðin áramót þegar hann var spurður um andmælarétt og væntanlegar bréfasendingar:
„Við tilgreinum þau atriði þar sem við teljum að þeim hafi orðið á mistök eða gerst sek um vanrækslu í störfum sínum.“
Í úttektinni í síðasta helgarblaði DV eru engir dómar felldir um þá sem fjallað er um, stjórnmálamenn eða embættismenn. Lagt er út af orðum formanns rannsóknarnefndar Alþingis um að þeir hafi fengið bréf sem nefndin telur að hafi orðið á mistök eða gerst sekir um vanrækslu í störfum sínum.
Þar getur engu að síður verið um margvísleg lögbrot að ræða og eru því nefndir nokkrir lagabálkar.
Vanræksla eða andvaraleysi í þjónustu fyrir almenning getur varðað við, lög um ráðherraábyrgð og lög um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna. Ennfremur geta stjórnsýslulög komið við sögu.
Um FME og Seðlabanka Íslands gilda lög um Seðlabanka Íslands, lög um verðbréfaviðskipti og lög um fjármálafyrirtæki svo nokkuð sé nefnt.
Hefði Ögmundur Jónasson lesið sitt DV gaumgæfilega mátti honum vera ljóst að blaðið gaf sér það eitt að bréfasendingarnar frá rannsóknarnefndinni til nafngreindra einstaklinga gátu ekki verið tilefnislausar. „Við tilgreinum þau atriði þar sem við teljum að þeim hafi orðið á mistök eða gerst sek um vanrækslu í störfum sínum,“ sagði Páll Hreinsson sjálfur um áramótin í samtali við mig.
Sumum finnst svo athyglisverðast hverjir ekki eru á listanum. Um það er bara eitt að segja: Bankamenn, eigendur banka eða aðrir sem kunna að hafa brotið lög á almennum markaði í tengslum við bankahrunið sæta rannsókn og verða sóttir til saka – sumir hverjir – af hálfu sérstaks saksóknara.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
