ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.0° 8m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

ÖGRANDI HUGREKKI

15:14 › 13. febrúar 2010

Sjálfstæðismenn halda prófkjör í Ísafjarðarbæ dag. Deilan um kvótakerfið er linnulaus þar vestra; um strandveiðar eða stórútgerð, um fyrningarleið eða óbreytt kvótakerfi.
Það er forvitnilegt og óvenjulegt að sjá frambjóðanda Sjálfstæðisflokks til trúnaðarstarfa fara jafn harkalega og af jafn mikilli hreinskiptni gegn kvótakerfinu og valdi stórfyrirtækjanna eins og Gísli Halldórsson gerir í grein sem nálgast má í gegn um vef BB.
Gísli gerir kvótatap Ísfirðinga að umtalsefni og segir meðal annars:

"Það þarf enginn að velkjast í vafa um að þróunin hér er að verulegu leyti kvótakerfinu að kenna, þó ýmislegt annað spili líka inn í. Ef við tökum þá hlutdeild í aflaheimildum sem Ísafjarðarbær hefur misst síðan 1991, þá er þar um að ræða að lágmarki 2%. Þessi 2% jafngilda um 3-5 milljörðum á framleiðsluverði ársins 2009. Þessi 2% jafngilda 160 störfum við veiðar og vinnslu og 480 störfum ef afleidd störf eru tekin með í reikninginn, eins og auglýsing útvegsmanna í BB í síðustu viku og upplýsingar á fyrning.is sýna okkur. Á okkar slóðum munar um minna en 480 störf.

Sér einhver fyrir sér bjarta framtíð með eitt stórt sjávarútvegsfyrirtæki sem öllu ræður? Fyrirtæki sem gæti gefið út sína afarkosti og skilmála um það hver hafnargjöld skuli vera, um verð til iðnaðarmanna og þjónustuaðila fyrir þeirra vinnu og þjónustu, um það hvaða ályktanir bæjarstjórn eigi að samþykkja, um það hver eigi að fá vinnu. Líklega er það ekki draumurinn! Einokun er slæm, en í ofanálag gæti slíkt fyrirtæki skipt um eigendur á morgun og verið farið úr plássinu hinn daginn.

Mér er fullljóst að fjölmörg smá fjölskyldufyrirtæki hafa verið að reyna að gera sitt besta í skugga kvótakerfisins. Ég trúi því að komið verði til móts við þarfir þeirra þegar kerfinu verður loksins breytt. Finna má ýmsar leiðir til að nálgast þau mál af sanngirni. Fullvissa mín er þó sú að við Vestfirðingar eigum mun meiri rétt, sem skapast hefur í aldanna rás, heldur en réttur þeirra fyrirtækja er, sem hafa notið aflaheimilda síðustu tuttugu árin."

LÍÚ hélt fund á Grand Hóteli í fyrradag gegn fyrningarleiðinni. Þar talaði vitanlega Ragnar Árnason hagfræðingur og  trúboði kvótakerfisins og séreignarréttar um árabil fyrir hönd stórútgerða. Þar brá hins vegar svo við að forstjóri FISK á Sauðárkróki viðurkenndi að auðlindir hafsins væru sameign þjóðarinnar og tylla þyrfti undir sátt um nýtingarrétt en ekki séreignarrétt.
Fundurinn var fjölmennur og voru andstæðingar kvótakerfisins þar í meirihluta og þóttust margir sjá LÍÚ höfðingjana ganga öskugráa út af sínum eigin fundi í lokin.

Gísli Halldórsson, sjálfstæðismaður á Ísafirði, endurspeglar þær viðhorfsbreytingar sem eru að verða í umræðunni um sjávarútveginn.




ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?