Hollenskir fjölmiðlar birtu í gær bréf frá viðskiptaráðuneytinu íslenska til breska fjármálaráðuneytisins frá ágúst og október 2008.
RÚV sagði frá þessu og mátti skilja að um einhver leyniplögg væri ræða.
Eins og oft áður standa fjölmiðlar sig ekki nægilega vel í heimildavinnunni, reyndar er ekki tíminn alltaf mikill til þess.
Staðreyndin um þessi bréf er hins vegar sú, líkt og oft áður með meint leyniskjöl, að þau hafa verið aðgengileg á upplýsingavef stjórnvalda, island.is, frá miðjum júní síðastliðnum.
Það þarf því ekki að koma á óvart að innan stjórnarráðsins sé talað um að island.is sé öruggasta skjalageymsla landsins :)
Annars er hundfúlt að hafa tvö til þrjú undanfarin misseri þurft að taka þátt í því að vinda ofan af blekkingarvef „við-borgum-ekki-liðsins“- . Viðsemjendur í Hollandi og Bretlandi geta framvísað margvíslegum skjölum um að Icesavedeilan á afhallandi vetri 2010 í nafni forseta Íslands, Ögmundar, Bjarna Ben. og Sigmundar InDefence, sé píp og reyndar mjög skaðvænleg fyrir þjóðina.
Meira að segja Eva Joly keyrði því miður út af og gengisfelldi sig með skrifum um að hugsanlega náist aðeins 30 prósent upp í 700 milljarða Icesave skuld sem Bjarni, Ögmundur og Sigmundur hafa nú viðurkennt.
Þrotabú Landsbankans á um 300 milljarða króna í skuldaviðurkenningu frá NBI.
Handbært fé er eða verður í lok ársins 200 milljarðar á vegum þrotabúsins.
Bara þetta er langt yfir 30 prósenta endurheimtum eins og Steingrímur J. sagði í RÚV í morgun.
Landsbanki Íslands (skilanefnd) í London á eftir að innheimta 330 milljarða króna meðal annars í fyrrum Baugsfyrirtækjum eins og Iceland Food sem er lýst sem peningamaskínu.
Sem sagt: Reynum nú öll að halda staðreyndum að Sigmundi Davíð, forsetanum, Bjarna Ben. og Ögmundi svo ekki hljótist af þeim meira tjón.
Blogg
ÖRUGGASTA SKJALAGEYMSLA LANDSINS
13:46 › 12. febrúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
