ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.0° 8m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

ÞJÓÐARATKVÆÐGREIÐSLA SETT Á ÍS

11:17 › 11. febrúar 2010

Samnefnari almenningsálitsins


Nú liggur fyrir að formenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafa viðurkennt samningsmarkmið sem verða með í farteskinu þegar Lee C. Buchheit fer með þá í bandi á samningafund með Bretum og Hollendingum um Icesave.


Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hafa þar með undirgengist tvo mikilvæga skilmála.


Sá fyrri er að þeir viðurkenna greiðsluskyldu lágmarksfjárhæðar innstæðutryggingakerfis ESB. – Þetta er vonum seinna því allar götur frá því löngu fyrir hrun hafa íslensk stjórnvöld „de facto“ viðurkennt þetta kerfi.  Allar athafnir og ákvarðanir íslensku bankanna, sem veltu á endanum tífaldri þjóðarframleiðslunni og svimandi erlendum skuldum, voru teknar með vitund, vilja og samþykki íslenskra stjórnvalda. Mér liggur við að segja með vitund, vilja og samþykki Sjálfstæðisflokksins.


Síðari skilmálinn er sá að fulltrúar íslensku stjórnmálaflokkanna mæti sýni fullkomna einingu og hviki ekki frá henni. -  Þetta merkir að Sigmundur Davíð og Bjarni hljóta að hætta því nú að nota Icesavemálið sjálfum sér til framdráttar í pólitíkskum hráskinnaleik og þjóðinni til tjóns. Eða hvernig ætla þeir að sýna samstöðuna ella?


Þetta er mikill ósigur fyrir Bjarna og Sigmund Davíð  og sýnir hversu illa læsir þeir eru á pólitík. Með því að fara utan og semja um vexti (sic) og draga það inn hvenær eignir þrotabús Landsbanka Íslands í Bretlandi verða seldar (sic) hafa þeir afhjúpað hversu hrikalega dýrir þeir hafa reynst íslenska þjóðfélaginu undanfarið ár eða svo.


Eitt augljóst dæmi er vitanlega það að þjóðaratkvæðagreiðslan um Iceavelögin frá áramótunum verður óþörf og sóun á almannafé.  Leigan á Buchheit og Johnston er líka sóun á almannafé. Líka skýrsla Mishcon de Reya. Að ekki sé talað um tjónið sem aldrei verður bætt vegna tafa á endurreisn og þjakandi Icesaveþrasi sem hrekur fólk til útlanda úr tómum leiðindum og vonbrigðum yfir heimsku þjóðar sinnar.


Þetta merkir einnig að ríkisstjórnin situr áfram, enda hefur hún haldið stöðu þótt Bjarni og Sigmundur hafi  Moggann, fréttastofu Sjónvarpsins og AMX og einhverja aðra netmiðla með sér í áróðursstríðinu gegn henni.


Tökum sérstaklega eftir því að stjórnarliðar munu fara fögrum orðum um Bjarna og Sigmund og strjúka þeim meðhárs næstu daga. Það verður gert í nafni friðar og til þess að draga úr frekara tjóni vegna ruglsins.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?