ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.0° 8m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

SEGIR HALLDÓR J. KRISTJÁNSSON SATT?

10:54 › 10. febrúar 2010

Halldór J. Kristjánsson fyrrverandi bankastjóri Landsbankans segir að hollenski seðlabankastjórinn hafi  árið 2008 haft áhyggjur af öllu íslenska fjármálakerfinu og stærð þess en ekki bara Landsbankanum og umsvifum hans í Hollandi.
Halldór segir að fall Lehman Brothers um miðjan september 2008 hafi komið flatt upp á alla og sett af stað „nær óhugsandi atburðarás“.
„Í ljósi þessara ummæla má spyrja hvort Seðlabanki Íslands og fjármálaeftirlit hafi haft aðgang að betri upplýsingum en þeir sem stjórnuðu stærstu hagkerfum heims... Ásakanir á hendur innlendra stofnana um ranga upplýsingagjöf geta því ekki talist sanngjarnar og fá ekki staðist,“ segir Halldór.
Hann segir ennfremur að Fjármálaeftirlitið á Íslandi hafi starfað gagnvart Landsbankanum með svipuðum hætti og fjármálaeftirlit í öðrum Evrópulöndum sem bankinn starfaði í. „Sama á við um Seðlabanka Íslands sem sem sinnti lagaskyldu sinni sem lánveitandi til þrautavara í samræmi við alþjóðleg viðmið.“

Allt er þetta mjög athyglisvert.
En hér vakna 3 mikilvægar spurningar sem ég vil beina til Halldórs og vona að þær nái til hans:
1) Hvernig stendur á því að Seðlabanki Íslands fór á hausinn,en aðrir seðlabankar ekki, við það að lána meðal annars Landsbankanum árið 2008, stundum gegn um aðra minni banka?  Féll Seðlabankinn  vegna þess að hann sinnti lagaskyldu sinni gagnvart Landsbankanum?

2) Ef allt var með felldu og sæmilegu lagi fram að þessari „nær óhugsandi atburðarás“ í september árið 2008, hvernig stendur þá á því, að samstarfshópur um fjármálastöðugleika þóknaðist nær allt árið 2008 að leyna innherjaupplýsingum um lausafjárstöðu bankanna fyrir tugþúsundum íslenskra hluthafa í bönkunum?  Það er ólöglegt gagnvart almennum hluthöfum og rakalaust ef enginn vissi einu sinni um „nær óhugsandi atburðarás“ sem síðar varð.
Minna má á, að Baldur Guðlaugsson, hluthafi í Landsbankanum, sat þessa fundi og lét færa til bókar 29. júlí þetta ár að ef þær upplýsingar sem hópurinn hefði undir höndum yrði á almanna vitorði yrði það banabiti bankanna!

3) Hvernig stendur á því að Sólon Sigurðsson fyrrverandi bankastjóri Búnaðarbankans lítur svo á að hann hafi  fyrir orð og milligöngu Halldórs J. verið neyddur til að lána Björgólfunum fyrir kaupum á Landsbankanum þvert gegn öllum fyrri áformum?

Hver segir ósatt Halldór? Mér þætti vænt um að fá svör við ofangreindum spurnngum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?