ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.0° 8m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

SANNLEIKSELSKANDI HALLDÓR J. - STÍG FRAM!

17:46 › 10. febrúar 2010

Ég skora á Halldór Jón Kristjánsson fyrrverandi bankastjóra Landsbankans að stíga fram og útskýra hvers vegna hann gekk svo hart eftir því að Búnaðarbankinn lánaði Björgólfunum fyrir kaupum á Landsbankanum.

Sólon Sigurðsson fyrrverandi bankastjóri Búnaðarbankans hefur upplýst við RÚV að Halldór J. hafi hringt í sig dag eftir dag og beitt  þrýstingi fyrir hönd væntanlegra Landsbankakaupenda, Björgólfanna.

Jafnvel þótt spillt helmingaskiptaregla Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins hafi komið við sögu kannast Halldór Ásgrímsson ekkert við þetta lán og þessar æfingar á sínum tíma að því er fram kom á Rás 2 síðdegis.

Hvers vegna þessi þrýstingur frá bankastjóra Landsbankans fyrir hönd manna sem fengu að kaupa bankann gegn fyrirheitum um að kaupa hann fyrir erlendan gjaldeyri? Rétt eins og um erlenda fjárfestingu væri að ræða??.

Ég hafði ávallt haft álit á Halldóri J. Kristjánssyni og taldi hann heiðarlegan mann.

Vill hann ekki gjöra svo vel að stíga fram og segja þjóð sinni sannleikann?

Og halda mannorði sínu?

Hann má líka svara þessum spurningum varðandi yfirlýsingu sína í Morgunblaðinu í dag.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?