Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins hafa áttað sig á að Icesave-leiðangur þeirra, sem hófst síðastliðið vor, var farinn til einskis.
Næst þarf íslenska þjóðin að líða fyrir það að þeir þurfa að fá að halda andlitinu. Eitthvað þarf að semja, tala aðeins meira við Hollendinga og Breta, ræða svolítið um breytilega vexti, komast að því að vígstaðan er ónýt fyrir Ísland í vaxtamálum, ganga enn einu sinni með betlistafinn til Breta og spyrja hvort við megum ekki fá lánuð þeirra lánskjör fyrir Icesave-reikningunum.
Og svo framvegis...
Svo þarf að lempa forsetann út af sviði framkvæmdavaldsins áður en hann gerir meira af sér.
Eina lýðræðið sem einhvern tíma hefur virkað og skipt fjöldann einhverju máli er fulltrúalýðræðið.
Inn á svið framkvæmdavaldsins – stjórnvalda - ruddist forsetinn og er nú á góðri leið með að auka tjónið sem af bankahruninu hlaust. Það segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri, vinur Ólafs Ragnars forseta.
Bjarni og Sigmundur Davíð eru búnir að átta sig á að ríkisstjórnin situr hvað sem um Icesavelögin verður í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Vígstaða ríkisstjórnarinnar batnar dag hvern sem nær dregur þjóðaratkvæðagreiðslu. Hún ætlar að una dómi þjóðarinnar. Falli Icesave hefur þjóðin tekið völdin af þeim Bjarna og Sigmundi Davíð. Þjóðin þarf ekkert lengur að hlusta á þá. Þá hefur hún sagt sitt. Þjóðin hefur áfram ríkisstjórn sem reynir þá enn eina ferðina að semja um Icesave. Reynir að lágmarka það tjón sem forsetinn, Bjarni og Sigmundur Davíð hafa kallað yfir þjóðina með töfum.
Kannski koma þeir með lafandi skottið og bjóðast til að ganga í slökkviliðið frekar en að vera áfram í hlutverki brennuvarganna.
Blogg
MEÐ LAFANDI SKOTTIÐ
17:19 › 1. febrúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
