Arnold Schilder
Björn Valur Gíslason þingmaður VG skrifar á bloggi sínu:
„Íslenskir starfsbræður okkar, ég get ekki lýst því öðruvísi en að þeir hafi logið að okkur" sagði Arnold Schilder yfirmaður innra eftirlits hjá hollenska seðlabankanum við rannsóknarnefnd Hollenska þingsins í dag. „Við vorum hafðir að fíflum“ bætti hann svo við af sama tilefni um samskipti Hollenska Seðlabankans við þann Íslenska. Það þarf varla að rifja það upp við hverja hann á, þ.e. hver réði húsum í Seðlabanka Íslands á þessum tíma. Það var fyrrverandi forsætisráðherra Íslands, fyrrverandi utanríkisráðherra, fyrrverandi formaður sjálfstæðisflokksins, aðalhöfundur hrunsins sjálfur og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins. Sá vann verk sín í skjóli flokksins undir verndarvæng og í fullu umboði forsætisráðherra flokksins og annarra ráðherra hans.
Það var því ekki nóg með að forysta sjálfstæðisflokksins hafi haft sína eigin þjóð, sitt eigið fólk, að fíflum heldur lugu þeir og sviku erlend stjórnvöld blygðunarlaust þegar þeim þótti svo henta.”
Birni Val er ekki skemmt. Engan skal undra. Þeir lugu jafnvel eftir að Lehman-bankinn var fallinn. Þeir lugu fyrir vini sína í Landsbankanum.
Fréttir bárust af því í júní í fyrra að tveir prófessorar við háskólann í Amsterdam hefðu komist að sömu niðurstöðu og Schilder lýsir hér í skýrslu sem samin var fyrir hollenska þingið um Iceave.
“Prófessorarnir sem hér um ræðir eru A.J.C. de Moor og C.E. du Perron, báðir sérfræðingar í fjármálarétti við háskólann. Skýrsla þeirra var til umræðu í hollenska þinginu í gær og verður umræðunni haldið áfram í dag. Skýrslan er unnin upp úr opinberum gögnum í Hollandi, þar á meðal skjalfestum samskiptum við Landsbankann og FME.
Meðal annars kemur fram í skýrslunni að hvorki Landsbankinn né FME hafi viljað viðurkenna í hve mikil vandræði Landsbankinn var kominn í sumarið 2008. Þar að auki hafi báðir þessir aðilar þverskallast við að grípa til nauðsynlegra ráðstafana á þeim tíma sem hefði getað dregið úr tjóninu sem síðar varð,” sagði í frétt á visir.is 25. júní 2009.
Hvernig átti Davíð Oddsson fyrrum seðlabankastjóri að líta til með Kjartani Gunnarssyni, vini sínum og flokksbróður í bankaráði Landsbankans?
Hvernig átti Jónas Fr. Jónsson fyrrum forstjóri FME að hafa eftirliti með vini sínum og flokksbróður Sigurjóni Þ. Árnasyni bankastjóra Landsbankans?
Vonandi veit rannsóknarnefnd Alþingis allt um þessa lygamerði.
Blogg
LYGARAR HAFA ÞJÓÐ SÍNA AÐ FÍFLI
21:37 › 1. febrúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
