ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.0° 8m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

ÞJÓÐ MEÐ SJÁLFSOFNÆMI

01:22 › 6. janúar 2010

Hvað átti nýlega kjörin ríkisstjórnin að gera? 
Forsetinn varð á vegi hennar eftir að hún hafði með naumindum - og í tvígang á einu ári - komið Icesave lögunum með harmkvælum í gegn um þingið?

Átti hún að fagna ákvörðun Ólafs Ragnars um að vísa málinu til þjóðarinnar?

Það var helst að skilja á framsóknarmönnum þessa lands í gær að ríkisstjórnin hefði glutrað niður tækifærum dagsins til þess að gleðjast með þeim. "Svakalega er hún pirruð."

Gott ef ríkisstjórnin átti ekki að rétta út sáttahönd að ósk forsetans?

Hafði forsetinn rétt sáttahönd?

Guðmundur Ólafsson hagfræðingur hafði örfá orð um þetta á vef DV.is í gær: "Mér finnst ákvörðun forsetans ákaflega vafasöm og nú veltur þetta allt á því hvernig Bretar og Hollendingar taka þessu. Þeir geta nú gert það sem þeim sýnist. Ég vona að þeir séu meiri vinir okkar en við eigum í raun skilið.“

Með leyfi að spyrja: Hvenær hafa stjórnarandstöðuflokkarnir sýnt viðleitni til samstöðu á undanförnum mánuðum?
Nú skyndilega gaspra þeir um að alltaf hafi verið ætlunin að greiða Icesave skuldirnar. "Bara ekki svona og með þessum skilmálum."
 
Þjóðin er eins og eitt allsherjar illkynja sjálfsofnæmi sem ræðst gegn eigin líkama.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?