Ég get ekki stillt mig um að benda á málefnalega gagnrýni Vilhjálms Þorsteinssonar á ákvörðun forseta Íslands í gær.
Vilhjálmur er hófstilltur maður í orðum og æði, en lýkur þó úttekt sinni á svofelldan hátt:
„Ég reyni að vera orðvar maður almennt, en ég verð að segja það hreinskilnislega, að mér finnst ákvörðun forsetans forkastanleg, óskiljanleg og illa ígrunduð.“
Á móti má segja, að ríkisstjórnin hafi verið heldur illa búin undir niðurstöðu forsetans. Eins og Björg Thorarensen lagaprófessor hefur bent á er það einfaldlega svo enn að forsetinn hefur synjunarvaldið samkvæmt stjórnarskrá sem mönnum hefði verið í lófa lagið að breyta eftir atburði ársins 2004.
Fjölmiðlalögin þá voru afnumin með lögum og málið fór aldrei til þjóðarinnar til ákvörðunar. Forsetinn hafði á orði eftir það - og reyndar einnig Steingrímur J. Sigfússon - að með þeim gjörningi hefði forsetanum verið fært meira vald en lög gera ráð fyrir. Sem í stuttu máli er þannig í veruleikanum að þóknist forseta að synja lögum staðfestingar leiðir það til þess að þau eru felld úr gildi.
Um slíkt er ekkert fjallað í stjórnarskránni.
Blogg
„ÓSKILJANLEG OG ILLA ÍGRUNDUÐ ÁKVÖRÐUN“
10:01 › 6. janúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
