Mig langar til að fá svör ykkar, Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson við einni spurningu. Formálinn að henni er eftirfarandi:
Fyrstu og helstu viðbrögð umheimsins við ákvörðun forseta um að synja Icesavelögunum staðfestingar er að Íslendingar ætli ekki að standa við skuldbindingar sínar; þeir ætli ekki að borga.
Þið, Bjarni og Sigmundur Davíð haldið því að kjósendum að neikvæð viðbrögð umheimsins séu vegna þess að ríkisstjórnin hafi haldið illa á málum og málstaður Íslands sé illa kynntur erlendis.
Í orði kveðnu segið þið að Íslendingar hafi ævinlega ætlað að standa við Icesave-skuldbindingar sínar en hafið mánuðum saman sjálfir haldið uppi orðræðunni um að Íslendingar eigi ekki að borga.
Að þessu leyti mætti allt eins rekja viðbrögðin erlendis til ykkar eigin orða og orðræðu síðustu mánuði: „Við viljum ekki borga.“ „Við ætlum ekki að borga.“ „Við sættum okkur ekki við skilmála.“ Og svo framvegis.
Ég vil fá svör ykkar, Bjarni og Sigmundur Davíð, við eftirfarandi spurningu:
Hvað nákvæmlega eigið þið við þegar þið segið að Íslendingar ætli og hafi alltaf ætlað að standa við skuldbindingar sínar í Icesavemálinu? Eigið þið til dæmis við að Íslendingar eigi og muni ábyrgjast lámarksinnstæðu á hverjum reikningi Icesave, tæplega 21 þúsund evrur á hvern reikning?
Þetta verður að komast á hreint. Þetta er mjög mikilvægt fyrir grundvöll breiðari samstöðu um málið en hingað til. Á meðan þetta kemst ekki á hreint liggið þið undir grun um að tala tveimur tungum og vera sjálfir skaðvaldar fyrir orðspor landsins.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
