ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.0° 8m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

FORSETINN HEFÐI GETAÐ VERIÐ Í FRÍI

08:34 › 5. janúar 2010

Það segir sína sögu um pólitískt eðli þeirra ákvarðana sem Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands stendur frammi fyrir, að væri hann erlendis í dag hefðu handhafar forsetavaldsins, í fjarveru hans, samþykkt Icesavelögin refjalaust og án málalenginga.

Handhafar forsetavalds eru forseti Alþingis, forsætisráðherra og forseti Hæstaréttar.

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, Samfylkingunni, er forseti Alþingis.
Jóhanna Sigurðardóttir, Samfylkingunni, er forsætisráðherra.
Ingibjörg Benediktsdóttir er forseti Hæstaréttar.

Meirihlutinn ræður lögum samkvæmt.

Kannski hefði Ólafur Ragnar átt að vera í fríi í dag.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?