ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.0° 8m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

SAMKVÆMNI ÓLAFS RAGNARS

13:32 › 4. janúar 2010

Þegar  Ólafur Ragnar Grímsson hugleiðir Iceave lögin og hvort hann eigi að undirrita þau eður ei verður honum vafalaust hugsað til síðari hluta maímánaðar 2004 og byrjun júní sama ár þegar hann synjaði fjölmiðlalögum Davíðs Oddssonar staðfestingar.


Ég hef ágætar heimildir fyrir því að síðustu dagana, jafnvel síðasta hálfa mánuðinn áður en hann boðaði til blaðamannafundar 2. Júní 2004 og tilkynnti niðurstöðu sína, hafi hann einangrað sig æ meir og tekið ákvörðun án þess að ráðfæra sig við aðra.  Að minnsta kosti ekki á lokaskeiðinu.


Rétt er að framsóknarmenn, sem þá voru í stjórn með Sjálfstæðisflokknum, gerðu litlar athugasemdir við rétt forsetans í 26. grein stjórnarskrárinnar til að skjóta málinu til þjóðarinnar. Sjálfstæðismenn hömuðust hins vegar gegn honum og það gerði einnig Morgunblaðið; forsetinn hefði engan rétt, væri auk þess vanhæfur o.s.frv.


Þegar forsetinn hafði synjað lögunum staðfestingar gekk maður undir manns hönd að finna leiðir til að halda málinu áfram með lögformlegum hætti enda engin fordæmin.


Ekki þótti fýsilegt fyrir ríkisstjórnina að treysta á þjóðaratkvæði. Davíð kaus að afnema lögin á sumarþingi og semja ný.  NÁNAST ÓBREYTT.


Framsóknarmenn voru ekki vissir í sinni sök.


Því hefur verið lýst í tímaritinu Ísafold (haustið 2006) og aftur í viðtalsbók Sigmundar Ernis Rúnarssonar við Guðna Ágústsson árið (2007) hvernig framsóknarmenn smám saman heyktust á því að styðja nær óbreytt fjölmiðlafrumvarp Davíðs á sumarþingi 2004.


Guðna þótti við hæfi að ganga á fund vinar síns Ólafs Ragnars forseta og bera málið undir hann.


Heimsókn hans er lýst í bók Sigmundar Ernis á svofelldan hátt:


 „Guðni heldur á fund forsetans undir hádegi í hásumri. Það er mugga úti en þó hlýtt. Honum er vel tekið. Á borðum er dýrindis lambasteik. Hann greinir það þó á forsetanum að hann er þreyttur. Það er greinilegt að átök síðustu vikna hafa tekið mjög á hann og svo virðist sem glettnin sé horfin úr ásjónu þessa gamla áhlaupsmanns í íslenskri þjóðmálaumræðu. Hann virðist miður sín og líður bersýnilega illa. Guðni þreifar því varlega á forsetanum en er samt í mun að komast að því hvaða hug hann beri til nýja fjölmiðlafrumvarpsins. Svarið er afdráttarlaust. Forsetinn gefur Guðna fastlega til kynna að hann muni hafna nýju lögunum rétt eins og þeim fyrri. Hann verði að vera samkvæmur sjálfum sér. Ólafur Ragnar gefur það jafnframt til kynna í þessu samtali þeirra Guðna að átökin við Sjálfstæðisflokkinn snúist ekki aðeins um þetta eina frumvarp heldur og ekki síður um framtíð forsetaembættisins. Átökin síðustu vikur varði ekki aðeins sinn persónulega heiður. Meginatriðið sé að verja embættið, frelsi þess og stöðu á ögurstundu.“  


Niðurstaðan varð  að Framsóknarmenn tilkynntu Davíð að þeir gætu ekki stutt nýtt frumvarp og málið var sett á ís í óþökk Davíðs sem kallaði framsóknarmenn gungur.

Nú eru heimildir fyrir því (segir RÚV) að núverandi Icesavelög hafi verið borin undir forsetann í frumvarpsformi síðastliðið haust. Hafði hann þá ekkert við þau að athuga.


Hafi Ólafur Ragnar ætlað að vera samkvæmur sjálfum sér árið 2004 og synja lítið breyttum lögum staðfestingar á ný,  væri hann þá ekki einnig samkvæmur sjálfum sér ef hann samþykkti Iceavelögin nú sem eru lítið breytt frá þeim lögum sem hann samþykkti síðsumars.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?