ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 12.0° 8m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

AUÐMÝKINGIN OG ÞROSKINN

21:10 › 31. janúar 2010

Séra Bjarni Karlsson flutti stólræðu í messu í Laugarneskirkju í dag. Messunni var útvarpað á Rás 1.

Ég lagði við eyrun.
Séra Bjarni sagði að lýðveldið íslenska hefði nú slitið barnsskónum, nú væri komið að því að leggja ungæðisháttinn á hilluna, þessum sem fylgir ungmennum sem telja að þeim séu allir vegir færir.
Nú væri komið að því að stíga inn í ár þroskans.
Þjóðin hefi verið auðmýkt, en án auðmýkingar tæki þjóðin ekki út þroska sinn.
Engin auðmýking - enginn þroski.
“Nú erum við hér þar sem við hlutum að lenda,” sagði séra Bjarni.


Bjarni hefur lög að mæla.


Enn um sinn sýnir drjúgur hluti þjóðarinnar lítil þroskamerki.
 
Ekki heldur sýnir þessi sami hluti þjóðarinnar að hann hafi lært eitthvað af auðmýkingunni.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?