Ég hef í í höndum skriflega frásögn fjölskyldu sem flutti erlendis til nokkurra ára náms. Fjölskyldan hafði alltaf verið ráðdeildarsöm og skilvís. Hún seldi íbúð sína og setti eignina, um 7 milljónir króna í fjárstýringu hjá Kaupþingi.
Þar var hjónunum sagt að fjárstýringunni fylgdi ávallt kostnaður hvernig sem allt færi.
Meðal þess sem Kaupþing gerði var að kaupa hlut í Landsbankanum sem þá var að fara á markað í kjölfar einkavæðingar og var því prýðilegur kostur til ávöxtunar milljónanna sjö.
Lítum á sjálfan textann:
“En hvað gerðist svo? Jú þeir (Kaupþing) seldu hlutinn tveimur vikum síðar. Hann hafði þá hækkað um 15 prósent. Þá varð ég ekki ánægður, enda ljóst að við einkavæðingu Landsankans myndi virði hans aukast mikið. Ég hringdi því og kvartaði en var þá tjá að ég ætti bara að vera ánægður með 15 prósenta gróða á hálfum mánuði og að þeir væru “sérfræðingarnir”.
Vitið þið hverjir keyptu minn hlut ásamt hlutum fjölda annarra í eignastýringu, annarra en þeirra sem voru með bein í nefninu og sættu sig ekki við þetta? Jú, KAUPÞING KEYPTI HLUTINA!
Hálfu ári áður en við fluttum til Íslands stóð eignasafn okkar í 6.5 milljónum króna og hafði rýrnað um 500 þúsund krónur á fjórum og hálfu ári í vörslu “sérfræðinganna” (sem samt höfðu mína hagsmuni í fyrirrúmi. Þvílíkt grín!)
Mér blöskraði alveg, hringdi í einhvern “sérfræinginn” og bað hann að selja þetta allt og kaupa víxla í staðinn. Þetta gerði að verkum að ég náði að hífa þeetta upp í 7 milljónir króna aftur. Athugið að það var ég sem náði því en ekki þeir sem fengu borgað fyrir að sýsla með sparnað okkar.
Þetta kenndi mér ða treysta engum nema sjálfum mér varðandi peningamál, enda hagsmunir viðskiptavina ekki hafðir í fyrirrúmi.
Þetta endaði því með engri ávöxtun á 5 árum. Aftur á móti borgaði ég talsvert til Kaupþings í þóknun fyrir VINNUNA MÍNA!.”
Ég spyr: Er ekki eitthvað skrítið við að einhver fjárstýringarmeistari, sem á að hugsa um hagsmuni viðskiptavinanna, taki bréfin sem gefa mesta arðinn í eignasafni þeirra og selji þau eftir skamma hríð bankanum sem hann vinnur hjá?
Var það fyrir þetta sem menn fengu bónusa og kúlulán? Að bæta hag eigenda bankans með því að féfletta viðskiptavinina?
Spyr sá sem ekki veit.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
