176 þúsund kjósendur á kjörskrá hafa ekki skrifað undir áskorun InDefence til forseta Íslands eða 77 prósent.
Það hafa hins vegar um 52 þúsund kjósendur gert þegar búið er að draga frá börn og brenglaðar skráningar.
Á kjörskrá eru 228 þúsund kjósendur.
Setjum sem svo að kjörsókn yrði 90 prósent í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Það gera 205 þúsund kjósendur.
Kjósendur vita hvað gerist ef þeir greiða lögunum frá 30. desember sl. atkvæði sitt, segja “já”.
Kjósendur vita einnig hvað gerist ef þeir segja nei við lögunum frá 30. desember sl. segja “nei”.
Þá taka við sömu lög sem voru afgreidd síðastliðið sumar á Alþingi með heldur harðari fyrirvörum.
Eina sem breytist er að enn verður stofnað til ágreinings við nágrannaþjóðir.
Um hvað?
Því betur sem kjósendur eru upplýstir, því meiri verður stuðningurinn við Icesave-lögin.
Ég mundi giska á 65 prósent stuðning í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Ólafur Ragnar forseti skrifar vitanlega undir lögin og þjóðin snýr sér að skuldavanda heimilanna og fyrirtækjanna og gerir upp við hvítu karlana sem kollsteyptu bankakerfinu.
Þetta verður gert með skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis að vopni.




















Fyrir síðustu jól varð Berglind fyrir hroðalegri árás aðila sem tengjast mótorhjólagengi. Ráðist var inn á heimili hennar og henni misþyrmt með þeim hætti að hún mun sennilega aldrei bíða ... 
