Skattgreiðendur rétta Páli Magnússyni og félaginu sem hann stýrir, Ríkisútvarpinu ohf., nærri 10 milljónir króna á dag í formi nefskatts.
Mér þykir einsýnt að niðurskurðaræfingar RÚV vegna tekjurýrnunar (sem aðrir taka á sig einnig í þjóðfélaginu) séu misráðnar með margvíslegum hætti.
Dæmi:
Ætlunin er að skera niður svæðistöðvarnar á Ísafirði, Akureyri og á Egilsstöðum niður á gamaldags fréttaritaraplan. (Sérkennileg áhersla á fréttir en ekki aðrar skyldur...)
Búið er að segja upp leigusamningum og ætlunin að selja húsnæði RÚV á Egilsstöðum.
Ég veit ekki hvort menn átta sig á því að RÚV flutti í nýtt húsnæði árið 2002 á Akureyri. Þar voru innréttuð tvö hljóðver. Hugsunin var meðal annars að RÚV á Akureyri væri lykilstöð – einskonar – „Efstaleiti til vara“ varðandi öryggishlutverk RÚV.
Þessi flutningur kostaði um 100 milljónir króna. Þetta þekki ég vegna þess að ég stýrði þessari stöð á þeim tíma og var jafnframt dagskrárstjóri Rásar 2.
Með því að flytja úr sérhæfðu húsnæðinu á Akureyri er verið að kasta fjármunum á glæ. Auk þess sem flutningur nú getur kostað margra ára leigu.
Áður en ég fluttist til Akureyrar á vegum RÚV stýrði ég RÚV á Egilsstöðum í þrjú og hálft ár.
Þar á Ríkisútvarpið gott og afskrifað húsnæði á besta stað. Eins er háttað með það og á Akureyri að húsnæðið er sérstaklega innréttað með hljóðver, ljósleiðartengingar og annað innra net sem þjónar öllu landinu og öryggishlutverkinu.
Þetta húsnæði á að tæma og selja.
Mikið er af nýbyggðum og tómum húsum á Egilsstöðum og vonlítið að eignin seljist á næstunni. Hugsanlega verður unnt að leigja það út fyrir lítinn pening.
Það er líka misráðið að skera þetta niður og finna nýjan stað fyrir „fréttaritara“. Flutningurinn getur kostað húsaleigu í nokkur ár þar eins og á Akureyri.
Ég veit ekki betur en að RÚV verði jafnframt að borga leigu, bæði á Ísafirði og á Akureyri í eitt til tvö ár samkvæmt samningum til þess að standa við gerða samninga.
Allt er þetta misráðið vegna þess að hætta er á að innviðir RÚV sem öryggistæki verði brotnir niður að nauðsynjalausu.
Ríkisútvarpið hefur skyldum að gegna samkvæmt lögum og fær til þess 3 til 3,5 milljarða króna frá skattgreiðendum eða sem nemur 10 milljónum króna á dag.
Það gegnir öryggishlutverki.
Það gegnir menningarhlutverki.
Það hefur skyldur til þess að þjóna öllum landsmönnum á jafnræðisgrundvelli.
Ef Páll Magnússon og liðsmenn hans telja að það sé heppilegt að örgra skattborgunum með því að hóta lögbrotum og að standa ekki við þjónustusamning við stjórnvöld er RÚV á villigötum.
Ef öryggishlutverkið er úr sögunni.
Ef stuðningur við innlenda dagskrárgerð er úr sögunni.
Ef RÚV getur ekki sinnt lengur lágmarksskyldum um jafnræði gagnvart skattborgurum um allt land.
Er þá einhver ástæða til að reka Ríkisútvarp?
Fyrir 3 -4 milljarða á ári gætu stjórnvöld varið velferðarkerfið eða bætt vegakerfið á verstu tímum í efnahagssögu lýðveldisins.




















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
