ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.9° 6m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

KLÓFESTUM ILLA FENGINN HAGNAÐ

10:44 › 24. janúar 2010

Stundum er sagt að peningafjöll bólunnar hafi aðeins verið pappírspeningar og þeir séu nú horfnir. Björgólfur Thor hefur til dæmis tekið þannig til orða. Komið er inn á þetta í myndinni “Maybe I should have”.


 


Stundum er einnig talað um að þær persónur og leikendur í glæfraspilinu sem kom þjóðinni á vonarvöl séu einhvers staðar á bilinu 30 til 130 að tölu.


 


Formúlan sem notuð var í innræktuðu fjármálakerfi krosseigna- og krosslánatengslanna belgdi kerfið upp. Verðmat fyrirtækjanna og bankanna skapaði hagnað.


 


Þennan hagnað tóku þessir 30 til 130 einstaklingar út. Sá hagnaður eru raunveruleg og áþreifanleg verðmæti.


 


Þessir fjármunir eru einhvers staðar á reikningum, aflandseyjum, skattaparadísum, erlendum reikningum, bundnir í fasteignum erlendis eða í ýmsum lúxus.


 


Í raun og veru er þetta illa fengið fé sem varð meðal annars til vegna þess að eftirlitskerfi á snærum almennings hafi sofið á verðinum og ekkert gert. EKKERT!

Við hin horfum upp á vandamál saklauss fólks hrannast upp. Óleysanleg að því er virðist hjá mörgum. Þau eru afleiðing af græðgi þessarra manna.


 


Hugmyndin í “Maybe I should have” um að finna peningana (follow the money) er ekki galin. Er ekki ástæða til að sækja þessa peninga?


 


Þó ekki kæmu inn nema fáeinir milljarðar af þessum "hagnaði" ár hvert í nokkur ár dugar það til að koma í veg fyrir niðurskurð til dæmis í velferðar- eða menntakerfinu.


 


Merkilegt hvað seint hefur gengið að hafa hendur í hári einhverra þessara höfuðpaura bólunnar.
´Mér hefur frá upphafi þótt hinir jafn miklir skúrkar sem voru á launum við að verja hagsmuni almennings í fjármálakerfinu en sváfu á verðinum og þjónuðu vinum sínum í einhverju galnasta og subbulegasta kunningjaveldi sem um getur. 


 


Við sjáum hvað setur. Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis kemur eftir viku. 

Förum og sjáum Maybe I should have.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?