ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.9° 6m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

ER EKKI EITTHVAÐ AÐ Í HÁSKÓLA ÍSLANDS?

20:50 › 23. janúar 2010

Vitrir menn hafa það til marks um stöðu Háskóla Íslands – sem stefnir að því að verða í hópi 100 bestu í heiminum – að enginn stjórnmálafræðingur með doktorsgráðu nennti að sækja um stöðu forstöðumanns Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála.

Þegar sú staða var komin upp risu stjórnarmenn stofnunarinnar upp við dogg, báru kennsl á hjúkrunarfræðing í hópi umsækjenda, og réðu hann.
Með allri sanngirni hafði þessi hjúkrunarfræðingur tekið góðar stjórnsýsluæfingar í hinu frjálsa atvinnulífi með aðkomu að einkarekstri í heilbrigðiskerfinu ásamt flokkssystkinum sínum.
Sá rekstur fór að vísu allur á höfuðið.

Best er að gefa þessu nafn.
Umsækjandinn sem ráðinn var heitir Ásta Möller hjúkrunarfræðingur og fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hún lauk  MA í stjórnmálafræðum eða stjórnsýslufræðum árið 2006 á sama tíma og  hún stundaði af alúð þingstörf,  meðal annars í þágu einkavæðingar á heilbrigðissviði.


Í stjórn Stofnunar stjórnýslufræða og stjórnmála, tilnefndir af stjórnmálafræðideild, eru:
Gunnar Helga Kristinsson prófessor og formaður , Ólafur Þ. Harðarson prófessor og Ómar H. Kristmundsson dósent.
Trausti Fannar Valsson situr í stjórnini tilnefndur af rektor.
Regína Ástvaldsdóttir skrifstofustjóri er tilnefnd í stjórnina af hálfu Reykjavíkurborgar.
Magnús Pétursson hagfræðingur og ríkissáttasemjari  er svo tilnefndur af Landspítalanum.


Jón Atli Benediktsson aðstoðarrektor hefur tekið að sér verja ráðningu Ástu í fjölmiðlum. Í helgarblaði DV biður hann háskólakennara, sem látið hafa í ljósi vanþóknun og sett fram rök gegn ráðningunni, að ganga ekki of langt í umræðunni. Faglega hafi verið staðið að verki. Vitanlega stefni menn að því að ráða fólk með doktorspróf.


Hefði stjórn Stofnunar stjórnsýslufræða ekki bara átt að spara við sig stöðuna um hríð úr því enginn doktor gaf sig fram og ef  skólinn stefnir áfram á topp 100 í heiminum?  Já, er ekki kreppa?


Ásta á víst að fara að kenna skyldunámskeið á grunnstigi í stjórnsýslufræðum. Þá blasir við að enginn kemst í í gegn um stjórnmálafræði eða stjórnsýslufræði í HÍ öðruvísi en að sitja í tímum hjá Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni og Ástu Möller.
Talandi um Hannes Hólmstein sem Der Spiegel gerði gys að í viðtali nýverið.
Heimildir eru fyrir því að þessi sami Hannes hafi haft milligöngu um mjög stóran styrk frá Landsbanka Íslands til rannsókna á vegum Stofnunar stjórnsýslufræða um íbúalýðræði og félagsauð árið 2007.
Ég gef mér að Hannes Hólmsteinn hafi haft gott talsamband við Björgólf Guðmundsson eftirlætisbankaeiganda Sjálfstæðisflokksins og Kjartan Gunnarsson, “fixerinn”, sem Össur Skarphéðinsson kallaði eitt sinn svo. Kjartan var lengi hægri hönd Davíðs Oddssonar í innmúruðum launhelgum Flokksins. Björgólfur var formaður bankaráðs Landsbankans og Kjartan, bjargvættur Hannesar, sat sömuleiðis í bankaráði þessa banka sem bundið hefur þjóðinni þyngri bagga en dæmi eru um.


Miðað við fjölda starfsmanna við rannsóknina á íbúalýðræðinu hefur styrkurinn numið tugum milljóna króna. Menn geta kynnt sér þetta á vef HÍ.  


Meðfylgjandi mynd var tekin 30. nóvember 2007 þegar undirritaðir voru samningar um ofangreindan styrk.
Í efri röð myndinni eru  meðal annarra, Ólafur Þ. Harðarson prófessor næst lengst til vinstri og yst til hægri er Margrét Björnsdóttir þáverandi forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða.
Í neðri röð eru Halldór Halldórsson formaður Sambands íslensksra sveitarfélaga og Björgólfur Guðmundsson, þáverandi formaður bankaráðs og aðaleigandi Landsbanka Íslands hf.
Björgólfi á hægri hönd er svo Gunnar Helgi Kristinsson, formaður stjórnar Stofnunar stjórnsýslufræða. Fleiri eru þarna á myndinni sem komu að málinu fyrir hönd sveitarfélaga og Landsbankans.

Þegar þessu vatt fram, og Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála horfði fram á góða styrki frá Landsbankanum í þrjú ár höfðu Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn verið saman í ríkisstjórn í hálft ár.
Allt lék í lyndi. Þetta var svolítið 2007 allt saman, líka í Háskóla Íslands. Kjartan Gunnarsson og Björgólfur Guðmundsson höfðu meira að segja efni á rannsóknum á íbúalýðræði.
 
En glík skulu gjöld gjöfum.
Hannesi Hólmsteini hafði samkvæmt samþykktum innan félagsvísindadeildar ekki kennt grunnnámskeið í stjórnmálafræði um hríð það best ég veit.
Varla var lengi hægt að úthýsa manni sem aflaði svo vel hjá Björgólfunum og Kjartani fixer fyrir stjórnsýslufræðin innan HÍ.
Hannes er nú byrjaður aftur og kennir meðal annars eitthvað um framtíð kapítalismans og hrunið.


Og nú er Ásta Möller, einkarekstrarfræðingur Alþingis, mætt á svæðið, með atkvæðum Gunnars Helga Kristinssonar, Ólafs Harðarsonar og hinna doktoranna.
Vonandi reynist hún bæði dugleg og hæf þótt reynsla hennar af rannsóknum sé lítil en barátta hennar fyrir einkarekstri heilbrigðiskerfisins hafi verið meira áberandi síðustu árin.


Flokkssystkinum hennar í valdstjórninni þótti eðlilegt árið 1988 að ráða Hannes Hólmstein til verka í HÍ með þeim orðum að skólinn þyrfti á skoðunum hans að halda en ekki fræðistörfum.


Ég veit ekki hvort einhver umsækjandanna hafi farið fram á rökstuðning með valinu á Ástu Möller. Sé svo verður fróðlegt að lesa þann rökstuðning.


Mun Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála við HÍ úr þessu gangast fyrir djúpum og umfangsmiklum rannsóknum á kunningjaveldi Sjálfstæðisflokksins og valdníðslu þessa ráðandi flokks innan stjórnkerfisins um áratugaskeið?


Ætlar Ásta að gangast fyrir rannsóknum á því hvernig embættiskerfið hefur verið ofurselt sérhagsmunaseggjum sem veifuðu flokksskírteinum til þess að hreppa lykilstöður?


Ætlar Ásta Möller að beita sér fyrir rannsókn á því hvernig meðvirkir  og flokkshollir embættismenn eyðilögðu íslensku stjórnsýsluna og stuðluðu að hruni íslenska fjármálakerfisins með óhæfu fólki sem ráðið var til verka samkvæmt umbunarkerfi Sjálfstæðisflokksins?


Ætlar Ásta Möller að sýna þjóðinni með rannsóknum hvernig Sjálfstæðisflokkurinn misnotaði um áratugaskeið skattfé landsmanna til að umbuna flokkshollum og valdhlýðnum gæðingum með feitum lykilembættum?


Ég veit ekki með aðra, en það læðist að mér óþægilegur grunur um að innan HÍ hafi kunningjaveldið og frændhyglin skotið rótum eins og svo víða í okkar litla hrunda og siðspillta klíkuþjóðfélagi.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?