ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.9° 6m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

ER BJARNI BÚINN AÐ VERA?

00:58 › 23. janúar 2010

Í helgarblaði DV stendur eftirfarandi, byggt á yfirheyrslum yfir Karli Wernerssyni, aðaleiganda Milestone og Sjóvár:


 


“Þann 29. febrúar (2008) áttu sér stað atburðir hjá Sjóvá sem eru lykilatriði í rannsókn sérstaks saksóknara á tryggingafélaginu og eiganda þess, Milestone.


Stór hluti yfirheyrslnanna mun hafa gengið út á að komast að því hvað átti sér stað þennan dag. Þá lánaði Sjóvá dótturfélögum Milestone samstals 15,7 milljarða króna. Þetta var 150 prósent af eigin fé félagsins. Fjármunirnir voru á endanum notaðir til að greiða bandaríska fjárfestingabankanum Morgan Stanley lán sem bankinn hafði veitt félögum í Milestone-samstæðunni til að kaupa hlutabréf í Glitni og sænska fjármála- og tryggingafyrirtækinu Invik. Því má segja að bótasjóður Sjóvár hafi verið notaður til að greiða erlendar skuldir sem Milestone-menn og viðskiptafélagar þeirra, Einar og Benedikt Sveinssynir, höfðu stofnað til við Morgan Stanley vegna hlutabréfakaupa.”


 


Í þessum sama mánuði fékk Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins umboð frá föður sínum Benedikt Sveinssyni og bróður hans Einari Sveinssyni til að veðsetja hlutabréf BNT, Hafsilfurs og Hrómundar í Vafningi. Sem sagt fjölskyldufyrirtæki. 


Það er einmitt Vafningur sem fékk lánaða 10,6 milljarða króna hjá Sjóvá þennan dag, 29. febrúar 2008, hlaupársdaginn.


 


Ekki þarf að hafa mörg orð um að ríkið þurfti að rétta Sjóvá eina 12 milljarða fljótlega eftir hrun til þess að bjarga tryggingafélaginu frá gjaldþroti.


Borgar almenningur ekki vextina af þeirri upphæð í boði formanns Sjálfstæðisflokksins?


Félagið er nú komið í sölumeðferð.


 


Yfirtaka Wernerssona og Engeyjarmanna, þeirra á meðal Bjarna Benediktssonar formanns Sjálfstæðisflokksins, á bótasjóði Sjóvár fyrir tæpum tveimur árum er eitt svívirðilegasta málið sem upplýst hefur verið í kjölfar hrunsins.


Gögn málsins bera með sér að gráðugir forkólfarnir hafi haft hugboð á þessum tíma um að íslenska fjármálakerfið var að hrynja og menn gætu í besta falli keypt sér tíma.


Því hefur Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og einn af stjórnendum Engeyjarpeninganna ekki verið yfirheyrður eins og Karl Wernersson, Þór Sigfússon og fleiri?


 


Úr þessu virðist sama hvað Bjarni Benediktsson segir; hann getur ekki komið sér undan ábyrgð.


Þar af leiðandi styttist áreiðanlega vera hans í formannssæti Sjálfstæðisflokksins.


Hugnsalega þarf hann einnig að víkja af þingi.


Hvaða forherðing var það annars hjá Bjarna að taka Sjálfstæðisflokkinn ekki í siðræna endurhæfingarmeðferð strax eftir að hann var kjörinn formaður?


Enn er hann fullur afneitunar.


Eins og Davíð.


Eins og Flokkurinn sem er vanur því að fá stuðningsmenn sína til að kjósa brotamenn á þing.


 


Meðal annarra orða: Hvaða erindi áttu Bjarni Benediktsson og Sigurður Kári Kristjánsson inn á þingflokksfund hjá Samfylkingunni í nóvember 2008, skömmu eftir hrun?


Voru þeir með einhverjar hugmyndir um að bjarga fyrirtækjum frá áföllum kreppunnar, til dæmis eins og félaginu Moderna, sem tapað hafði tugum milljarða árið 2008 og var á þeim tíma yfir 90 prósent af eigum Milestone?


Vildu þeir semja um líf Moderna við Samfylkinguna?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?