ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.9° 6m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

VALDIÐ TIL AÐ BREYTA SAMFÉLAGINU

09:43 › 22. janúar 2010

Að einu leyti gerði Ólafur Ragnar Grímsson forseti rétt þegar hann synjaði Icesave-lögunum staðfestingar. Þingið hafði svikið þjóðina um lausnir á aðkallandi vanda í 15 mánuði. Alþingi hafði brugðist þjóðinni. Að því leyti var kannski rétt að vísa málinu til þjóðarinnar sem kaus nýverið 63 einstaklinga til að taka ákvarðanir í umboði kjósenda.


Þessir 63 fulltrúar höfðu nýtt umboð kjósenda.


Kjósendur eiga ekki að kynna lausnir. Það er verkefni kjörinna fulltrúa.


Ólafur Ragnar missti kannski traust og álit á löggjafarvaldinu.


Hvernig má það vera?


 


Þetta með stjórnarflokkana


VG er klofinn flokkur og varla stjórntækur. Svo langt hefur órólega deildin í flokknum gengið fram á bjargbrúnina í stjórnarsamstarfinu við jafnaðarmenn að endrum og sinnum hefur stefnt í stjórnarslit þessarar fyrstu ríkisstjórnar jafnaðar- og vinstrimanna frá stofnun lýðveldisins. Með herhvöt á vörum um að bjarga velferðarkerfinu ganga Ögmundur Jónasson og fleiri til verka.


Hann átti hins vegar alltaf þann möguleika að standa í lappirnar sem heilbrigðisráðherra og verja velferðarkerfið úr því vígi. Stilla persónu sinni utan við leiksviðið, leggja kalt og hlutlægt mat á aðstæðurnar og hugsa: Koma tímar, koma ráð.


Raunsæi Steingríms J. Sigfússonar flokksformanns er kallað svik á stórfundi VG á Akureyri. Nú gengur Steingrímur erinda kapítalistanna og nýlenduþjóðanna, hvískrar klofningshópurinn.


Á hvaða ferðalagi eru vinstrigrænir?


Samfylkingin – aðeins 10 ára gömul – er lúin eftir aðeins þriggja ára stjórnarsetu. Hún lyftir ekki litlafingri til þess að berjast fyrir stefnumálum sínum. Það gæti hún vel gert á flokkslegum grundvelli og án þess að ráðherrarnir beiti sér. En það gera hún nánast aldrei. Samt hefur Samfylkingin miklu betri aðstæður til þess að fylgja einarðlega stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar en VG. Þar á bæ er ekki hægt að samþykkja neitt án þess að einhverjir fari í fýlu og hafi í hótunum. Hver höndin upp á móti annarri.


Svo er hitt að Samfylkingin heldur ógjarnan fram stefnumálum ríkisstjórnarinnar til þess að styggja ekki órólegu deildina í VG. Bannhelgi hvílir á nokkrum málaflokkum sökum vanstillingar á þeim bæ.


Vita mega þeir sem órólegastir eru innan VG að hvað sem öllu beinu lýðræði líður og hversu göfugir sem menn vilja vera á erfiðum tímum í viðleitni til að skapa farveg fyrir þetta beina lýðræði verða menn að hafa viljann til valdsins. Vilji þeir breyta samfélaginu verða þeir að sýna stjórnkænsku og hafa hugfast að það gera þeir ekki einir. Það gerist í samvinnu við einhverja. Meira að segja önnur þjóðríki ef svo ber undir.


 


Værum við betur stödd án þeirra?


Sjálfstæðisflokkurinn er klofinn flokkur í afneitun og ekki tilbúinn til að taka við stjórnartaumum. Bældir og valdhlýðnir fulltrúar atvinnulífsins þora ekki enn að opna sig gagnvart Hádegismóarausinu. Eða LÍÚ. Gera það hæversklega af og til meðan þeir læra að ganga á ný eftir 20 ára valdstjórn foringjans.


Davíð Oddsson lítilsvirti störf endurreisnarnefndar flokksins á landsfundi í lok mars í fyrra. Bjarni Benediktsson, nýr formaður flokksins, sá sitt óvænna, tók u-beygju og sökkti sér ofan í gömlu hjólförin með heimastjórnararminum. Engin iðrun. Engin innri endurskoðun eða endurreisn.


Sjálfstæðismenn jagast nú ráðvilltir og stefnulausir í stjórnarandstöðu og finna helst samstöðu með sérhagsmunum sem borga í flokkssjóðina. Kveljast yfir óvissunni um það hvort þeir fái rétta menn inn í bankakerfið til þess að miðla gæðunum aftur til réttra manna.


Framsóknarflokkurinn neitar að borga. Stundum. Og þó. En kannski. Jú, stefna ber að þjóðaratkvæði. En nei, það er hættuspil að fara með Icesave í þjóðaratkvæði. Hvernig væri bara að gera ekkert og láta óvini fullvalda og sjálfstæðrar þjóðar höfða mál?


Hvað er hægt að segja um Hreyfinguna? Eiginlega ekkert annað en það að hún hefur farið svo herfilega að ráði sínu með grasrót búsáhaldabyltingarinnar að hún hefur tryggt að aldrei, aldrei aftur verður gerð bylting á Íslandi.


Þráinn Bertelsson: Hjá Þráni ríkir hinn fullkomni flokksagi, einhugur og samstaða. Hægt er að taka ofan fyrir honum því hann veit að lífið liggur við að setja nítró á tankinn og gefa í.


DV - miðvikudagur 20. janúar 2010



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?