ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.9° 6m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

VORU HVORT EÐ ER Á LEIÐ Í LAND

18:46 › 20. janúar 2010

Ég má til með að birta eftirfarandi texta sem glöggur maður sendi mér í dag:


„Ég sé að stór hluti fiskiskipa Eyjamanna sigla í land á morgun. Hingað til hefur ekki þurft að senda út sérstaka fréttatilkynningu vegna landanna í gáma en þess má geta að Eimskip tekur gáma á fimmtudögum og Samskip á föstudögum í Eyjum. Enn síður hefur þótt tilefni til þess að tilkynna sérstaklega ef að skip haldi til hafnar vegna veðurs en seinnipartinn á morgun er búist við stormi eða roki á suðurmiðum.


 


Þetta er óneitanlega brosleg sýning sem útvegsmenn í eyjum setja á svið núna en lítur vel út í augum almennings. Því er full ástæða til að það fylgi með í umfjöllun um þessa samkomu í Eyjum að skipin hefðu hvort sem er verið í landi.


 


Í þessari landlegu þurfi sjómenn hinsvegar að skunda á fund þegar komið er í land til þess að taka þátt í áróðursstríði vinnuveitenda sinna, í stað þess að njóta kvöldsins með fjölskyldu sinni. Ég velti því fyrir mér hvort þeir sjómenn sem ekki mæti á fundinn megi búast við að komast í ónáð vinnuveitenda síns.“



Þetta er sprenghlægilegt, en síðasta setningin er grafalvarleg. 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?