ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.9° 6m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

DODefence gegn skuldaklafa Seðlabankaþrots

12:03 › 2. janúar 2010

Mótmælendur við Bessastaði og 55 til 60 þúsundir sem hafa skorað á forsetann að skjóta Icesavelögunum nýju til þjóðarinnar eru væntanlega þeirrar skoðunar að fella beri lögin í þjóðaratkvæðagreiðslu.


 


Verði það gert taka gömlu lögin gildi, sem Alþingi samþykkti síðastliðið sumar.


Þau eru alveg eins og lögin á borði forsetans.


Fyrirvörum, sem löggjafinn gerði við Icesave-samninginn þá, var breytt og eru varnirnar í lögunum á borði forsetans heldur minni en áður.


Breytingarnar urðu í samningaviðræðum við Hollendinga og Breta.


 


Það er hálfvitagangur að halda að unnt sé að kjósa af sér Icesaveskuldirnar í þjóðaratkvæðagreiðslu. Undir slíkt kynda stjórnarandstöðuflokkarnir. Enn skruma þeir fyrir lýðnum. Og vilja kalla nýjar milliríkjadeilur yfir þjóðina ofan á allt annað.


 


Sjálfur sting ég upp á að safnað verði liði undir nafninu DODefence og skorað á þing og ríkisstjórn að létta Seðlabankagjaldþrotinu af herðum þjóðarinnar, sem eru þó þyngri byrðar en Icesaveskuldin.


 


Óánægjan sem nú er spilað á er sú sama og ævinlega. Fólk vill ekki auknar skuldir. Fólk vill ekki hærri skatta. Fólk vill ekki lægra kaup. Fólk vill ekki verðbólgu. Fólk vill ekki ónýtan gjaldmiðil. Fólk vill ekki háa vexti.


Fólk vill ekki klíkuskap, undirhyggju og spillingu við endurúthlutun gæðanna.


Fólk vill réttlæti.


 


Þegar nýju Icesave-lögin taka gildi verður það verkefni ríkisstjórnarinnar að ráðast á þennan garð. Það er stóra verkefnið. Icesave er aðeins hluti vandans og minni enn hundruð milljarða Seðlabankaþrot.


 


Ég hvet menn endilega til þess að safna liði gegn drápsklyfjum sem á herðar okkur eru lagðar vegna tæknilegs gjaldþrots Seðlabankans. Það er að mínu viti enn skynsamlegra en að safna liði gegn byrðunum af Icesave-skuldinni.


 


Ég eftirlæt áhugasömum hér með hugmynd að nafni samtakanna: DODefence.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?