ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.9° 6m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

KOM Í VEG FYRIR 90 MILLJARÐA TJÓN

14:26 › 19. janúar 2010

Ég las grein eftir Pál Benediktsson upplýsingastjóra skilanefndar gamla Landsbankans í DV í gær. Greinin snýst um það hvað sé satt og rétt um laun Baldvins Valtýssonar yfirmanns skilanefndarinnar í London og að hve miklu leyti hann kom nálægt Icesave á sínum tíma.


Ekki ætla ég að ræða það hér heldur vekja athygli á eftirfarandi klausu úr grein Páls, sem er  frétt í mínum augum:


 


„Eitt dæmi af mörgum sem sýnir afgerandi mikilvægi þess að halda Baldvin og hans fólki við störf gerðist strax eftir hrunið. Gegn 100 milljóna punda láni kröfðust bresk stjórnvöld að útibúið seldi traust lánasafn að verðmæti 800 milljónir punda. Besta verð sem boðið var í safnið nam um 320 milljónum punda. Í stað þess að selja lánasafnið tókst Baldvin og starfsfólki hans með mikilli hörku og seiglu að greiða upp lánið og afstýra brunaútsölu með gríðarlegu tapi. Afföll af 800 milljóna punda lánasafninu verða að öllum líkindum um 2%. Ljóst er því að með þessum ráðstöfunum tókst að koma í veg fyrir um 450 milljóna punda tap í búi Landsbanka Íslands hf., sem kemur til með samkvæmt öllum áætlunum að skila sér upp í Icesave-reikning Íslendinga.“


 


Þetta dæmi vekur mig til umhugsunar um þýðingu kunnáttu, menntunar og reynslu.


Við förum varla undir skurðarhnífinn án þess að hafa vissu fyrir því að sá sem aðgerðina gerir sé menntaður og þjálfaður læknir.


Það er sjálfgefið í huga okkar þegar við stígum um borð í flugvél að flugstjórinn sé lærður flugmaður með lágmarksreynslu.


Og svo framvegis.


Nú veit ég ekkert um Baldvin Valtýsson. En þetta dæmi segir mér, að það kann að vera háð mönnum eins og honum hversu miklar heimtur verða á eignum upp í Icesaave eftir bankahrunið. Því meir sem inn kemur, því lægri Icesave-reikningurinn.


Ég vona að menn geri sér grein fyrir því að Baldvin hefur komið í veg fyrir 80 til 90 milljarða króna tjón ásamt sínu fólki í London.


 


Enn og aftur er ekki hægt annað en að taka undir með þeim sem segja að betra hefði verið að ákærur hefðu nú þegar verið gefnar út á hendur þeim sem grunaðir eru um lögbrot. Þannig fengju menn eins og Baldvin að finna störf sín í næði.


 


Ég er bærilega þjálfaður í því að meta upplýsingar og sannreyna. Ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að dæmið af Baldvin sé bæði satt og rétt.


Annars er hægt að lesa um þetta í DV.


 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?