Kæri Ögmundur!
Ég sé á vefsíðu þinni að þú ert ekkert ánægður með minn málflutning í Icesavemálinu.
Ég treysti mér ekki í rökræður um göfugt íslenskt lýðræði á grundvelli 26. greinar stjórnarskrárinnar.
Að einu leyti gerði Ólafur Ragnar forseti rétt þegar hann synjaði Icesavelögunum staðfestingar. Þingræðið hafði svikið þjóðina um lausnir á aðkallandi vanda í 15 mánuði. Alþingi, þar sem þú átt sæti, hafði brugðist þjóðinni. Að því leyti var kannski rétt að vísa málinu til þjóðarinnar sem kaus nýverið þig og 62 aðra einstaklinga til að taka ákvarðanir í umboði okkar.
Þið einfaldlega brugðust þjóðinni!
Hvorki ég né aðrir kjósendur eigum að kynna lausnir. Það er þitt verkefni og 62 annarra kjörinna fulltrúa.
Ólafur Ragnar er þjóðkjörinn og missti kannski traust og álit á ykkur líka.
Varla nema von.
En ég vona að Ólafur Ragnar viti að þjóðaratkvæðagreiðsla gengur ekki sem málsverður þjóðar í vanda.
Kæri Ögmundur.
Mig langar til að kynna þér mína greiningu á stjórnmálaflokkunum eftir hrakfarir þeirra, dugleysi og skort á myndugleika í kjölfar bankahrunsins.
VG, flokkurinn þinn er klofinn og varla stjórntækur. Svo langt hefur þú (og fleiri) gengið fram á bjargbrúnina í stjórnarsamstarfinu við jafnaðarmenn, að endrum og sinnum hefur stefnt í stjórnarslit þessarar fyrstu ríkisstjórnar jafnaðar- og vinstrimanna frá stofnun lýðveldisins. Með herhvöt á vörum um að bjarga velferðarkerfinu hefur þú gengið til verka. Ekki megi fórna því fyrir Icesave.
Því stóðst þú ekki bara í lappirnar og settir undir þig hausinn þegar þú varst heilbrigðisráðherra? Stilltir persónu þinni utan við leiksviðið, lagðir kalt og hlutlægt mat á aðstæðurnar og hugsaðir: Koma tímar koma ráð.
En nei. Þú strýkur Sigmundi Davíð og færð hrós á Morgunblaðinu og AMX. Varst þú nokkuð að halla þér að sjálfstæðismönnum sem lögðu fram tillögur á þingi um að skera niður ríkisreksturinn – velferðina – um 9 milljarða til viðbótar?
Ætlaðir þú að vinna Icesavestríðið með skrímsladeild Sjálfstæðisflokksins og skipulagshagfræði Framsóknarflokksins að vopni en ögra um leið stjórnarsamstarfinu og velferðarstefnunni sem er þér svo hugleikin?
Samfylkingin – aðeins 10 ára gömul – er lúin eftir aðeins þriggja ára stjórnarsetu. Hún lyftir ekki litlafingri til þess að berjast fyrir stefnumálum sínum. Það gæti hún vel gert á flokkslegum grunvelli og án þess að ráðherrarnir beiti sér. Þeir gera það nánast aldrei. Samfylkingin hefur miklu betri aðstæður til þess að fylgja einarðlega ákveðinni stefnu en VG; þar á bæ er ekki hægt að samþykkja neitt án þess að einhverjir fari í fýlu og hafi í hótunum. Hver höndin upp á móti annarri. Þú þekkir þetta betur en ég.
En Samfylkingarmenn standa þó saman og kvika ekki.
Hafir þú viljann til valdsins Ögmundur og viljir breyta íslensku samfélagi þá gerðu það með Steingrími og jafnaðarmönnum. Þú getur barist gegn ESB-aðild þegar þar að kemur, grafið þig ofan í þjóðernisskurðinn og vígbúist. Mundu bara eitt: Ef þú vilt breyta samfélaginu verður þú að gera það með öðrum, ekki sóló.
Sjálfstæðisflokkurinn er klofinn flokkur í afneitun og ekki tilbúinn til að taka við stjórnartaumum. Bældir og valdhlýðnir fulltrúar atvinnulífsins þora ekki enn að opna sig gagnvart Hádegismóarausinu. Eða LÍÚ. Gera það hæversklega af og til.
Davíð Oddsson lítilsvirti störf endurreisnarnefndar flokksins á landsfundi í lok mars í fyrra. Bjarni Ben. tók u-beygju og sökkti sér ofan í gömlu hjólförin með heimastjórnararminum. Engin iðrun. Engin innri endurskoðun eða endurreisn. Sjálfstæðismenn jagast ráðvilltir og stefnulausir í stjórnarandstöðu og finna helst samstöðu með sérhagsmunum sem borga í flokkssjóðina. Kveljast yfir óvissunni um það hvort þeir fái rétta menn inn í bankakerfið til þess að miðla gæðunum aftur til réttra manna.
Framsóknarflokkurinn neitar að borga. Stundum. Og þó. En kannski. Jú, stefna ber að þjóðaratkvæði. En nei, það er hættuspil að fara með Icesave í þjóðaratkvæði. Hvernig væri bara að gera ekkert og láta óvini fullvalda og sjálfstæðrar þjóðar höfða mál?
Von að Ólafi Ragnari forseta lítist ekki á blikuna og grípi í taumana.
Hvað er hægt að segja um Hreyfinguna? Eiginlega ekkert annað en það að hún hefur farið svo herfilega að ráði sínu með grasrót búsáhaldabyltingarinnar að hún hefur tryggt að aldrei – ALDREI – aftur verður gerð bylting á Íslandi.
Þráinn Bertelsson: Hjá Þráni ríkir hinn fullkomni flokksagi, einhugur og samstaða. Ég tek ofan fyrir Þráni sem veit að lífið liggur við að setja nítró á tankinn og gefa í.
Ps. Mér finnst vefsíðan þín mjög góð Ögmundur.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
