ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.9° 6m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

HANNES Í SPIEGEL Í BOÐI HÁSKÓLA ÍSLANDS

17:21 › 18. janúar 2010

Einn daginn fordæmir Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor við Háskóla Íslands auðræðið sem svo er kallað (plutocracy). Segir auðmannaklíku hafa náð undirtökunum í landinu eftir að Davíð Oddsson sté af valdastóli árið 2004.
Hinn daginn lofar hann kjör ríkasta manns Chile á forsetastól.


Þegar geðþóttaheilinn Hannes lofar auðræðið þýðir það á íslensku að allt hafi verið í lagi fram til haustmánaða 2004 þegar Davíð Oddsson hætti.


Allt var í slíku himnalagi að Hannes Hólmsteinn skrifaði bókina um það hvernig Ísland getur orðið ríkasta land í heimi árið 2001. Hann sat áreiðanlega við skriftir þegar Samkeppnisstofnun gerði húsleit hjá olíufélögunum og Flokkurinn hans brjálaðist. Svelti samkeppnisstofnun næstu árin og lagði hana svo niður í núverandi mynd af því hún setti kusk á hvítflibba Flokksgæðinganna.


Var rétt að gera slíkt ef forsætisráðherrann fyrrverandi, sem Hannes dýrkar svo mjög, hafði áhyggjur af fákeppni og auðræði? Davíð hafði orð á samþjöppun og auðræði á matvörumarkaði í janúar 2002 á Alþingi. Er skynsamlegt við slíkar aðstæður að þrengja að samkeppnisyfirvöldum af þvi að þau gerðu húsleit hjá Flokksgæðingum og fór gegn vinunum?


Í umfjöllun Der Spiegel fyrir skemmstu segir að Hannes sé maðurinn sem kveikti þann draum íslensku þjóðarinnar að verða besta land í heimi. „Eitt andartak sýnir hann auðmýkt og hógværð. Hann langar aðeins til þess að vera minnst á spjöldum sögunnar sem mannsins sem fordæmdur var með óréttlátum hætti, jafnvel þótt hann hefði gert allt rétt.“


„Fimmtíu og sex ára gömlum Gissurarsyni líkar slík athygli vel. Hann er í svörtum Nike-buxum, íþróttaskóm og svörtum bol. Hann andar djúpt og réttir úr sér,“ segir höfundur Spiegelgreinarinnar.


Hannes Hólmsteinn vitnar í grísku goðafræðina og segir að Ísland minni á Íkarus sem flaug of nærri sólinni og féll til jarðar.
Þarna fær Hannes að láni líkingu sem breski hagfræðiprófessorinn Robert Wade notaði í frábærri ritgerð um Ísland í maí í fyrra: The Crisis – Iceland as Icarus. 
Hannes er vanur að fá texta að láni.


Nú ekur Hannes sér af ánægju þegar plútókratinn, auðræðismaðurinn og hægrimaðurinn Sebastián Piñera hefur verið kjörinn forseti Chile. Hann er einn ríkasti maður landsins, einskonar Berlusconi .


Ég lít svo á að bullið í Hannesi Hólmsteini í Spiegel sé fyrst og fremst skemmtiefni, mér sýnist greinarhöfundurinn einmitt taka því þannig – gerir góðlátlegt grín að frjálshyggjutrúarbrögðum  þessa skrítna prófessors frá hrunda landinu.


Að öðru leyti er bullið í Hannesi í boði Háskóla Íslands sem getur því miður lítið gert að því að vinir hans komu honum þangað inn árið 1988 með járnkarli og kúbeini með þeim orðum að skólinn þyrfti á skoðunum hans að halda en ekki fræðistörfum.


Spiegel vissi áreiðanlega af þessari fortíð þegar blaðið ákvað að ná í skemmtiefni héðan.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?