Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur látið eitt og annað flakka um opinberu förina sem hann fór ekki með Ólafi Ragnari Grímssyni forseta og Dorrit forsetafrú til Indlands.
Meðal þess sem hrotið hefur af vörum hans er að hann sé í miklum önnum hér heima eftir að forsetinn skaut Icesavelögunum til þjóðarinnar og “aðrir geti verið töskuberar forsetans á Indlandi”.
Engum dylst að hér er utanríkisráðherrann að sneiða að forseta sínum fyrir beitingu málskotsréttarins í stjórnarskránni.
Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur blaðað í stjórnarskránni, kembt allar reglugerðir stjórnarráðsins og setið í ríkisstjórn en finnur ekki neitt um það hlutverk utanríkisráðherra að vera töskuberi fyrir forsetann.
Í heita pottinum fóru menn ekkert á taugum yfir þessu öllu saman og af vörum Hjálmars Freysteinssonar læknis hrutu eftirfarandi línur:
Við óheilindum er illt að gera.
Össur er stöðugt svindlandi.
Og svo má Ólafur sjálfur bera
sínar töskur á Indlandi.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
