Eitthvað hefur starfsmanni Pressunnar á fréttadeild fatast flugið í dag. Þar er að finna fyrirsögn á þessa leið:
„Danir samir við sig: Íslendingar sleppa miklu betur úr krísunni segir Politiken á forsíðunni“
Í umfjöluninni sjálfri segir:
„Danskir fjölmiðlar halda uppteknum hætti í dag og halda neikvæðum fréttaflutningi í garð Íslands áfram í ljósi Icesave-deilunnar. Á forsíðu Politiken í dag segir að Íslendingar sleppi miklu betur úr krísunni en áður var haldið og sleppi létt frá skuldbindingum sínum.“
Spyrja má: Er ekki jákvætt að sleppa betur frá krísunni...?
Hvernig væri fyrirsögnin á fréttasíðunni: „Samtök atvinnulífsins halda áfram neikvæðum áróðri sínum gegn sanngjörnum kröfum Alþýðusambands Íslands“?



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
