Nú hótar Landssamband íslenskra útvegsmanna að sigla flotanum í land ef Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra úthlutar þeim ekki skötusel inn í séreignaraflahlutdeildarkvótakerfi sitt. Hótunin um að sigla í land kom fram hjá Friðriki J. Arngrímssyni í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Hann er maðurinn sem Jón Baldvin Hannibalsson kallaði launaðan starfsmann harðsnúnasta sérhagsmunagæsluliðsins í landinu í útvarpsþættinum Sprengisandi um síðustu helgi. Sérhagsmunaliðsins sem væri búið að fara svo illa að ráði sínu að það skuldaði nú þrefaldar árstekjur alls sjávarútvegsins. Þeir hafa sem sagt í hótunum við þjóðina. Þeir hafa líka haft í hótunum við sveitarstjórnarmenn í sjávarplássum ef þeir skrifuðu ekki undir áskorun gegn áformum ríkisstjórnarinnar innköllun aflaheimilda til ríkisins í samræmi við fyrningarleiðina. Þeir sitja í fjölmennri nefnd á vegum sjávarútvegsráðherra sem hefur það verkefni að endurskoða kvótakerfið. Fulltrúar LÍÚ voru í þvílíkri fýlu út í sjávarútvegsráðherra að þeir mættu ekki á fundina um hríð. Ástæðan var að sjávarútvegsráðherra ætlaði að taka slatta af skötuselskvóta og leigja á markaði í stað þess að úthluta honum beint til kvótagreifanna. Helmingur sjávarútvegsfyrirtækja er gjaldþrota eða því sem næst. Það er hryggilegt. Drjúgur hluti kvótans er á forræði bankanna, sem nú eru í meirihlutaeign erlendra kröfuhafa, banka í Þýskalandi og bandarískra vogunarsjóða. Lög kveða á um að þessir kröfuhafar verða að losa sig við kvótann á innlendum markaði ef til þess kemur. Erlendu kröfuhafarnir gætu líka ákveðið að halda kvótanum en leigja hann út. Væru þeir þá að brjóta lög? Varla. Og sennilega myndi verð á kvóta lækka verulega við slíkar aðstæður. Ég mæli með því að erlendir kröfuhafar geri einmitt þetta, leigi útgerðarmönnum hér á landi kvótann sem þeir ráða yfir. Sennilega er það góð leið til tiltektar í kvótakerfinu og dregur áreiðanlega úr braski innan greinarinnar. Við fáum þá að sjá hvort LÍU verður með jafn mikið harðlífi í garð kröfuhafanna og ríkisstjórnarinnar sem vill að kvótinn verði á forræði þjóðarinnar en útvegsmenn hafi nýtingarréttinn eftir sem áður.
Blogg
HAGSMUNAEINBLÍNI SÆGREIFANNA
23:19 › 13. janúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
