Allir hugsandi menn ættu að lesa SOS- grein Jóns Baldvins Hannibalssonar um Icesavebölið. Það er holl lesning og skörp pólitísk greining.
Greining Jóns Baldvins bendir mér á hversu sárlega okkur skortir víðsýnt fólk til verka sem ekki er haldið þessari séríslensku plágu sem ég vil kalla „hagsmunaeinblíni“.
Hvernig þjóðin mín missir sig alltaf í boltann þegar „keppnis“ á ekki við.
Ofan á allt annað liggur heil kynslóð sérhagsmunagæsluliða með flokksskírteini undir grun um að reyna að spilla umræðunni og skerpu hennar með því að dreifa allskyns „sannlíki“ (disinformation) inn í umræðuna.
Munum það sem Halldór Laxness sagði í Innansveitarkróníku:
„Því hefur verið haldið fram að íslendíngar beygi sig lítt fyrir skynsamlegum rökum, fjármunarökum varla heldur, og þó enn síður fyrir rökum trúarinnar, en leysi vandræði sín með því að stunda orðheingilshátt og deila um titlíngaskít sem ekki kemur málinu við; en verði skelfíngu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarna máls.“
Ég tek ofan fyrir Jóni Baldvini.
Blogg
„ÞÁ VÆRI ICESVEREIKNINGURINN EKKI TIL“
09:56 › 12. janúar 2010
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
