Undir Icesavedeilunni geisar hatursfullt stríð hér á landi. Stríðið snýst um að koma þeirri ríkisstjórn frá sem heitið hefur að koma okkur í nánara samband við siðmenninguna og vinda ofan af skelfilegustu sérhagsmunagæslu síðari tíma á kostnað heillar þjóðar.
Þetta segi ég vegna þess að þann dag sem Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn komast aftur til valda munu þeir samþykkja Icesavemálið lítið sem ekkert breytt.
Þetta segi ég vegna hatursfullrar andstöðu Sjálfstæðisflokksins gegn aðildarumsókn að Evrópusambandinu sem stjórnast fyrst og fremst af útgerðarvaldinu sem heldur úti Morgunblaðinu. Flokksins sem neitar að iðrast og sýna auðmýkt.
Þessum öflum hefur nú forseti þjóðarinnar í raun gengið á hönd um leið og hann skýlir sér á bak við lýðræðisást. Þannig er það hvort sem honum líkar betur eða verr. Hann er eins og Davíð Oddsson, með laskaða ímynd og þarf að endurskrifa söguna sér til hagsbóta, eftir að áramótaskaupið hafði endanlega af honum æruna og mannorðið á gamlárskvöld.
Ögmundar þessa lands verða sem nytsamir sakleysingjar, sjálfur kemur Ögmundur fram í Silfri Egils, stríðsmaður þjóðarinnar gegn heimskapítalismanum, og segir nú að hjálpræðið komi frá vinum í Evrópu.
Evrópusambandinu??!!?
Hentistefnan er alger: Ögmundur elskar fólk í ESB og Davíð Oddsson elskar Ólaf Ragnar. Þegar það hentar.
Sannleikurinn er sá að þjóðremban, hellismunnasjónarmmiðin og ofstækisfull sérhagsmunabarátta hér innanlands eru í þann veginn að koma okkur á kaldan klaka. Þegar menn hlusta grannt eftir til dæmis því sem Jonas Gahr Störe, utanríkisráðherra Noregs, segir nú má augljóst vera að Norðurlöndin eru í þann veginn að snúa baki við okkur. Enginn þarf að undrast þótt þjóðir, sem heita því að lána Íslendingum fé, telji puttana eftir handtak við íslenska ráðamenn þegar þeir eru í þann veginn að segja við umheiminn: „við borgum ekki“.
Til eru þeir sem herhvötin úr Hádegismóum hefur þvælt út á ystu brún. Einmitt þeir segja: „Við borgum ekki!“ , „Við borgum aldrei!“ og vilja koma málum þannig fyrir að Hollendingar og Bretar höfði mál gegn Íslendingum vegna Icesave. Þeir hnykla vöðvana og segjast vilja taka slaginn.
Þetta er vitanlega miklu meira hættuspil en núverandi samningur. Því eins og Þorvaldur Gylfason prófessor segir í sunnudagsblaði Moggans, þá er það nú svo, að Bretar og Hollendingar taka á sig hálfa ábyrgðina af Icesave „með því að krefja Íslendinga um ca. helming þeirrar fjárhæðar, sem þurfti til að bæta 400.000 innstæðueigendum Landsbankans í Bretlandi og Hollandi skaðann, sem þeir urðu fyrir, þegar Landsbankinn hrundi.“
Hlustum á samhljóminn í eftirfarandi tilvitnunum (dæmi af handahófi) og heyrum hvernig Hádegismóri hefur náð tökum á hljómsveitinni. Hún spilar nánast í „perfect harmony“:
„Bretar og Hollendingar geta á hinn bóginn verið mjög sáttir við ferð fjármálaráðherra Íslands (til Norðurlandanna). Árangurinn var einungis sá að setja þrýsting á Íslendinga og kjósa með bresku, hollensku og íslensku ríkisstjórninni gegn eigin hagsmunum.“ (Leiðari Morgunblaðsins 11. janúar – ritstjóri Davíð Oddsson)
“Ísland er í sókn. Við munum hrinda af okkur árásum níðinganna. Við njótum samúðar heimsins. Vinir okkar munu ljá okkur lið.” (Baldur Hermannsson – bloggari yst til hægri)
„Þjösnaskapur Steingríms J. hér heima er í hróplegri andstöðu við gunguhátt hans erlendis þar sem hann lyppast niður fyrir ofríki gömlu nýlenduveldanna.“ (Páll Vilhjálmsson - mbl.bloggari)
„Þess vegna eru menn svona pollrólegir, forhertir og hrokafullir úti í Hollandi og Bretlandi. Þeir vita sem er að stjórnvöld sem meta aðstöðu sína svo hraklega, sem hin íslensku, eru ekki líkleg til nokkurra stórræðna. Þess vegna var ekki merkilegra svara að vænta frá yfirvöldum í Hollandi og Bretlandi. Þau eru löngu farin að þekkja samningsaðilann á Íslandi og hvers er að vænta frá honum.“ (Einar K. Guðfinnsson)
„Heldur er nú raunalegt orðið að fylgjast með framgöngu Steingríms J. Sigfússonar. Hann er orðinn sorgleg fígúra, sem talar máli andstæðinga okkar í Icesave-málinu og hefur selt frá sér allar hugsjónir fyrir völd og stólapólitíkin hans minnir ósjálfrátt á Halldór Ásgrímsson. Ég hélt lengi vel að þessi maður hefði eitthvað bit og það væri meira í hann spunnið. Á mettíma er hann hinsvegar hann orðinn jafn valdagráðugur og meðal framsóknarmaður fyrri tíða.“ (Stefán Friðrik Stefánsson bloggari)
“Þetta framlag er hluti af mikilli bylgju vakningar í Evrópu um raunverulega stöðu Íslands,” (Eyþór Arnalds)
„Háværustu úrtöluraddirnar eru forsætisráðherra Íslands og fjármálaráðherrann. Þetta er fólkið, sem einatt hefur brugðið fyrir sig röksemdum Breta og Hollendinga – sem við nú vitum að halda engan veginn vatni – til að draga kjarkinn úr Íslendingum og fá okkur til að sætta okkur við orðinn hlut.“ (Ólafur Arnarson – Pressan)



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
