ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.9° 6m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

LÍKA BROT Á ÍSLENSKUM LÖGUM

21:53 › 11. janúar 2010

Þeir sem hafa gaman af því að þvæla sér út í lagastagl um innstæðutryggingakerfi Evrópusambandsins ættu að líta einnig á eftirfarandi.


 


Til eru lög um starfsemi fjármálafyrirtækja nr. 161 frá árinu 2002.


36. grein fjallar um stofnun og rekstur útibúa erlendis eins og Landsbankinn gerði í Bretlandi og Hollandi.


 


Munið eftir tvennu áður en þið lesið greinina, sérstaklega þó það sem ég hef feitletrað:


1) Landsbankinn opnaði útibú Icesave í Hollandi 29. maí 2008. Það hefur verið “kríminellt” samkvæmt neðangreindri lagagrein.


2) Var hægt að ætlast til þess að Jónas Friðrik Jónsson forstjóri Fjármálaeftirlitsins hefði eftirlit með vini sínum, skólabróður og flokksbróður, Sigurjóni Árnasyni, bankastjóra Landsbankans?


 


Grein 36 er svohljóðandi:


 


"Innlend fjármálafyrirtæki sem hyggjast starfrækja útibú í öðru ríki á Evrópska efnahagssvæðinu, í aðildarríki Fríverslunarsamtaka Evrópu eða Færeyjum skulu tilkynna það Fjármálaeftirlitinu fyrir fram.


Tilkynningu skv. 1. mgr. skulu fylgja upplýsingar um í hvaða ríki fyrirhugað sé að stofna útibú, lýsing á starfsemi útibúsins, skipulagi þess og fyrirhugaðri starfsemi og upplýsingar um heimilisfang útibúsins og nöfn stjórnenda þess.


Eigi síðar en þremur mánuðum frá því að Fjármálaeftirlitinu bárust upplýsingar skv. 2. mgr. skal það senda staðfestingu til lögbærra yfirvalda gistiríkis á að fyrirhuguð starfsemi sé í samræmi við starfsleyfi fyrirtækisins. Jafnframt skal Fjármálaeftirlitið senda lögbærum yfirvöldum gistiríkis upplýsingar um eigið fé fyrirtækisins, gjaldfærni, tryggingar innlána og bótakerfi sem verndar viðskiptavini útibúsins. Hlutaðeigandi fyrirtæki skal samtímis tilkynnt að framangreindar upplýsingar hafi verið sendar.


Fjármálaeftirlitið getur bannað stofnun útibús skv. 1. mgr. ef það hefur réttmæta ástæðu til að ætla að stjórnun og fjárhagsstaða hlutaðeigandi fjármálafyrirtækis sé ekki nægilega traust. Fyrirtækinu skal tilkynnt afstaða Fjármálaeftirlitsins svo fljótt sem auðið er og eigi síðar en þremur mánuðum frá móttöku fullnægjandi upplýsinga skv. 2. mgr.


Fjármálafyrirtæki skal tilkynna Fjármálaeftirlitinu og lögbærum yfirvöldum þess ríkis þar sem það starfrækir útibú um hverjar þær breytingar sem kunna að verða á áður veittum upplýsingum skv. 2. mgr. eigi síðar en einum mánuði áður en fyrirhugaðar breytingar koma til framkvæmda."

Samkvæmt þessu dugar mönnum ekki að vísa einvörðungu til ágalla í tilskipunum ESB um galla í innstæðutryggingakerfinu.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?