ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.9° 6m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Er Ögmundur leynivopn hægri manna?

13:27 › 30. september 2009

Eftirfarandi skrifaði ég í kjallaragrein í DV  um miðjan ágúst:

„Vinstri grænir, eins og Ögmundur Jónasson og Lilja Mósesdóttir,  hljóta að gera sér grein fyrir því að viljinn til valdsins og þétt grip um stjórnartaumana er forsenda þess að geta hrundið í framkvæmd fögrum hugsjónum. Gera þau sér ekki grein fyrir því að með því að láta sögulegt meirihlutasamstarf VG og Samfylkingarinnar liðast í sundur vegna Icesave-deilunnar eru þau um leið orðnir bestu liðsmenn Sjálfstæðisflokksins á leið þeirra í valdastólana? (...) Sjálfstæðisflokkurinn hræðist ekki VG enda þjónar sundrungin þar innan veggja hagsmunum flokksins. Á sundrungunni er alið meðal annars með lærðum skrifum lögfræðinga með flokksskírteini.“



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?