ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.9° 6m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Ofsafengin valdabarátta

22:26 › 28. september 2009

Umræða um vald er mér hugleikin. Ég hef mikið velt fyrir mér leyndardómum valdsins.
Hvaða greinar segja eitthvað af viti um vald? Lögfræðin? Hagfræðin? Félagsvísindin?

Eftirfarandi texti séra Baldurs Kristjánssonar um vald er með því betra sem ég hef séð lengi; hnitmiðaður, fullyrðingasamur, ágengur og umhugsunarverður:

"Harðvítug átök standa nú yfir um völdin í íslensku samfélagi.  Slík átök eru í öllum samfélögum en aldrei eins gróf og ofsafengin eins og í kreppu þegar allt hefur hrunið.  Oftast ná  þeir yfirhöndinni sem hafa fjármagnið sín megin.  Á ófriðartímum ná karlar aftur vopnum sínum, hörkunaglar sem kalla ekki allt ömmu sína. Konum er hent út í horn.


Á Íslandi eru átökin rétt að byrja. Átökin verða áfram um fiskveiðiauðlindina, um landið sjálft og orkuauðlindirnar.  Flest ræðst með sama hætti og á öllum öldum, í leyndum farvegum, samböndum og klíkum. Afbragðsmenn eru vegnir og léttvægir fundnir, foringjar búnir til úr öðrum.  Foringjar verða þeir sem hafa vit á því að standa fyrir ákveðna hagsmuni. Lýðræðið er aðeins hluti af leiknum. Þeir sem læra á lýðræðið, leikreglur þess, verða ofaná ef allt hitt er í lagi."

Ég skora nú á lesendur að lesa ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra frá flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar síðastliðinn laugardag. Við lesturinn má vera ljóst að á bak við texta ræðunnar og þau áform ríkisstjórnarinnar sem þar má lesa um er ríkur vilji til þess að stokka upp ríkjandi valdakerfi.

Mun það takast? Lýstur þar saman vörslumönnum almannahagsmuna og sérhagsmuna?
Eða hvernig er þetta vaxið í rótgrónu klíkuþjóðfélagi og kunningjaveldi?  


 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?