Kunningi á svipuðu reki og ég sagði eitthvað á þessa leið við mig í gær:
„Ég fæddist í þessu ágæta landi. Hér vil ég vera með fólkinu sem mér þykir vænt um og njóta gæða þessa lands sem við eigum. Ég á aðeins eitt lífshlaup, eina mannsævi, eins og aðrir og vil vanda mig og verja ævinni sem best.
Það er bagalegt að þurfa að búa við þá skerðingu lífsgæða þriðjung lífshlaupsins að standa í slag og heiftúðugum þjóðfélagsdeilum út af einum valdagráðugum karli. Alltaf poppar hann upp aftur þegar maður hefur ræktað með sér smá von um að nú séu tímarnir að breytast og ég og mitt fólk geti snúið sér að öðrum heilbrigðari málum."
Ung stúlka tók þátt í spjalli okkar og sagði: „Þú getur þó fagnað því að hafa átt góða og ómengaða æsku. Ég hef haft Davíð Oddsson yfir, undir og allt í kring frá því ég man eftir mér. Ég á mér ekkert líf án hans. Og svo poppar hann upp núna á Mogganum, svona eins og til að "rub it in my face" að gamla spillingarþjóðfélagið er ekkert á förum.“
Þetta er umhugsunarvert. Vegna þess að Davíð kemst hvergi nema fyrir tilverknað samverkamanna, klíkubræðra, sérhagsmunagæslunnar, flokkshestanna, sem koma honum enn og aftur til metorða.
Turkmenabasi Íslands á Mogganum.
Blogg
Skugginn yfir tilverunni
11:50 › 25. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
