ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.9° 6m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

GÁTA !

13:32 › 23. september 2009

Hver sagði eftirfarandi og við hvaða tækifæri?

„Það er enginn vafi í mínum huga á því að sú óheillaþróun að eigendur bankanna eignuðust alla frjálsa fjölmiðla varð til þess að þeir urðu smám saman eins og hafnir yfir gagnrýni. Það gerði næstum ógerlegt að stöðva vöxt þeirra og útþenslu auk þess sem flestir voru í klappliði þeirrar útrásar, líka þeir sem nú vilja ekkert við kannast. Eyðilegging fjölmiðlalaganna er því mesta pólitíska skemmdarverk sem unnið hefur verið í síðari tíma sögu Íslands. Örlög fjölmiðlalaganna, þar sem löggjafarvaldið var haft undir, færðu auk þess útrásarvíkingunum þá trú að nú væru þeir ósnertanlegir og þeim væru allir vegir færir.“

Sami einstaklingur sagði einnig eftirfarandi, en við hvaða tækifæri?


"Það er í þágu almannahagsmuna að fjölmiðlar séu sem óháðastir í störfum sínum þannig að ekki leiki grunur á að ákvörðun um birtingu upplýsinga og umfjöllun um einstök mál ráðist af tengslum fjölmiðlanna við valda- eða hagsmunaöfl í samfélaginu".



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?