Fátækir íslenskir fjölmiðlar hafa mátt þola 111 meðferð af hálfu ríkisstjórnarinnar í dag. Fyrir hádegi máttu um 15 blaða- frétta- og tökumenn bíða eftir lokum ríkisstjórnarfundar til um klukkan eitt í dag.
Von að þeir bíði vegna þess að þjóðfélagið er á heljarþröm og flestar mikilsverðar ákvarðanir í lausu lofti um fjárhag heimila og fyrirtækja, skatta og niðurskurð velferðarkerfisins.
En ráðherrarnir sögðu ekki neitt og og 50 klukkustundir á reikning fjölmiðlanna fóru í súginn.
Blaða- og fréttamönnum var sagt að tíðinda væri að vænta fyrir sameiginlegan þingflokksfund nú síðdegis á Hótel Nordica. Að minnsta kosti ætluðu ráðherrar þá að tala við fjölmiðlana. Svo var sagt.
En sama sagan endurtók sig. Forsætisráðherrann gekki inn gólfið, horfði klumsa á alla blaða- og fréttamennina og sagði: „Það er enginn blaðamannafundur.“ Aðrir ráðherrar höfðu ekkert að segja. Hitt og þetta væri í skoðun. Jóhanna og Steingrímur töluðu stuttlega við blaðamenn og hurfu á braut.
Aðrar 20 klukkustundir, akstur og bensín og annar kostnaður fjölmiðlanna féll í tómið.
Þetta er ekki boðlegt!
Réttast væri að fjölmiðlarnir sendu sameiginlegan reikning til ríkisstjórnarinnar.
65 klukkustundir x hálfur taxti skilanefndarlögfræðinga gera kr. 520.000,-
Í ekki neitt!!!
Blogg
Mér er verulega misboðið
16:44 › 22. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
