Óskar Magnússon útgáfustjóri Árvakurs, Sigurbjörn Magnússon, stjórnarformaður Árvakurs, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, fjárhaldsmaður Guðbjargar Matthíasdóttur (stærsta hluthafans í Árvakri), Einar Sigurðsson, sonur Guðbjargar í Íslandsbanka, Þorsteinn Már Baldvinsson (hluthafi í Árvakri) og aðrir úr náhirð Sjálfstæðisflokksins og varðliðar kvótakerfisins í hópi hluthafanna hvorki vilja né þora að gera Davíð Oddsson að ritstjóra Morgunblaðsins.
Til þess liggja fjárhagslegar ástæður. "Money talks", ekki síst þegar peningarnir eru uppurnir eins og reyndin virðist vera um það hlutafé sem nýji hluthafahópurinn lagði Mogganum til byrjun ársins.
Að breyta Mogganum í málpípu og valdatæki hagsmunaseggja gamla Íslands á hægrivæng íslenskra stjórnmála mun ekki verða blaðinu til framdráttar.
Þá má rifja upp það örlagaríka augnablik þegar Davíð seðlabankastjóri ákvað að þjóðnýta Glitni fyrir framan nefið á Þorsteini Má sem þá var stjórnarformaður bankans. Þorsteinn Már kom bugaður í sjónvarp og sagðist hafa gert sín stærstu mistök þegar hann leitaði til Davíðs í seðlabankanum um fyrirgreiðslu við bankann.
Elskar hann Davíð svo mjög að hann geri hann að ritstjóra nú?
Hópurinn sem hætti fé í Moggann mun komast að því að með því að breyta blaðinu í gæslumiðil fyrir sérhagsmuni fylgir kostnaður, minnkandi lestur blaðsins, minni tekjur og síðan nýtt gjaldþrot Árvakurs hvað sem líður góðum tengslum inn í ríkisbankakerfi Steingríms J. Sigfússonar.
Reyndar trúði ég ekki fyrr en ég tók á því að Ólafur Stephensen yrði hrakinn úr ritstjórastól Moggans. Í hans tíð hefur Mogginn orðið faglegri en áður og státar ekki síst af harðsnúnum fréttaflutningi úr viðskiptalífinu. Hallareksturinn er á ábyrgð Óskars en ekki Ólafs.
Líklegra er að Davíð Oddsson verði gerður að leigupenna Morgunblaðsins eftir hægrisnúninginn. Líkt og Þorsteinn Pálsson, annar fyrrum forsætisráðherra Sjálfstæðisflokksins, fær að horfa vikulega af kögunarhóli sínum á leiðarasíðu Fréttablaðsins. Þorsteinn og Davíð fá sem sagt tækifæri til að skrá Íslandssöguna í þágu Sjálfstæðisflokksins á síðum dagblaðanna.
Það sýnir visst umburðarlyndi Ara Edvalds hjá 365 og Óskars og Sigurbjörns á Árvakri að leifarnar af forréttinda- og valdastétt gamla Íslands fái að blása einu sinni í viku á síðum "virtra" dagblaða.
Voru þeir ekki allir bestu vinir, innvígðir og innmúraðir sérhagsmuna- og forréttindamenn sem útdeildu gæðunum í launhelgum Flokksins á hinu gamla Íslandi sem þeir vilja nú endurreisa?
Þarf kannski aðra byltingu til þess að losa þjóðina við í eitt skipti fyrir öll við gamla Ísland?
Blogg
Verður Davíð leigupenni á Mogga?
11:20 › 20. september 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
