“Orðið á götunni” (eyjan.is) segir frá því að einn af umsækjendunum um stöðu seðlabankastjóra, Yngvi Örn Kristinsson, yfirmaður í Landsbankanum, hafi lent upp á kant við bankastjóra sinn Ásmund Stefánsson og sé farinn til starfa fyrir Árna Pál Árnason félagsmálaráðherra.
Jú mikið rétt, sú er raunin.
Orðið á götunni heldur því fram að Árni Páll ætli að gera Yngva Örn að næsta forstjóra Íbúðalánasjóðs og umsóknarferlið verið bara eitthvert grín.
En það er ekki aðalatriði þess sem nú skal greint frá.
Innanbúðarmaður talar
Einhver HH gerir athugasemd við “Orðið á götunni”. Hún er allrar athygli verð vegna þess að þar skrifar bersýnilega innvígður maður sem þekkir klíku- og jafnvel flokkstengslin í Landsbankanum:
Texti HH er svofelldur:
“Sagan segir að Ásmundur í Landsbankanum sé að reyna fá Yngva út úr bankanum og nota hann sem blóraböggul í ICESAVE málinu og vernda Jón “ICESAVE” Oddleifsson nýgerðan framkvæmdarstjóra eftir hrun. Sá maður sem almenningur hefur viljað úr bankanum sem einn helsta höfund peningastefnu bankans síðustu ár og fyrrverandi yfimann fjárstýringar LÍ.
Ásmundur hefur takmarkaða þekkingu á rekstri banka og líður vel með Jón í fanginu, sem í raun stýrir bankanum í dag, alveg eins og hann stýrði bankanum fyrir hrun með Sigurjóni og Bjögga G.
Yngvi var yfirmaður Jóns Þorsteins (Oddleifssonar) fyrir hrun en Jón fór með allar ákvarðanir framhjá honum beint til Sigurjóns. Örugglega ekki bestu vinabönd þar á milli. !
Yfirmannamál í Landsbankanum hafa verið til skammar og í “bullandi” pólitík fyrir hrun sem og eftir, allt á kostnað þjóðarinnar og almennings.
Það er tími til að ríkistjórn taki til í yfirstjórn bankans annars munu sömu “áhugamennirnir” bara endurtaka leikinn með sama viðhorfi og áður, það er ekki sem við viljum. HVERN ER VERIÐ AÐ VERNDA HÉR !”
Það er eitthvað óútskýrt, eitthvað sérkennilegt við stöðu Ásmundar Stefánssonar í Landsbankanum. Maður hefur á tilfinningunni að hann sé einskonar Trojuhestur; maður með vinstri fortíð í baráttu fyrir hagsmuni alþýðufólks, en kemur fyrir nú sem vöslumaður sérhagsmuna, maður gamla spillta Íslands.
Hrunmenn dansa með Ásmundi
Eru þetta menn sem bera einhverja ábyrgð á hruninu? Feta þeir vegi ógagnsæisins með Ásmundi þessa dagana?
Trúverugir menn segja mér að Samfylkingin hafi látið blekkjast skömmu eftir hrunið þegar Valur Valsson var valinn til að gæta hagsmuna Sjálfstæðisflokksins í Nýja Glitni, Magnús Gunnarsson í Nýja Kaupþingi og Ásmundur Stefánsson sem valinn var formaður bankaráðs Landsbankans. Valur og Magnús úr Sjálfstæðisflokknum og Ásmundur, fyrrverandi forseti ASÍ, einskonar vinstrimaður og baráttumaður alþýðunnar.
Ásmund í Landsbankann? Höfuðvígi Sjálfstæðisflokksins í fjármálageiranum? Vígi Kjartans Gunnarssonar? Bjöggana?
Er hugsanlegt að náin en leynd og óheppileg tengsl séu milli Davíðs Oddssonar og Ásmundar Stefánssonar?
Gaman þætti mér að vita það.
Er ekki rétt að ég spyrji hann sjálfur í nafni gagnsæisins, hvort hann hafi trúnað stjórnvalda? Hvort hann leggi í að sækja um stöðuna þegar hún verður auglýst? Stöðuna sem hann datt með óútskýrðum hætti inn í þegar forveri hans í bankastjórastöðunni hvarf á braut?
Var einhver ástæða til að halda honum þegar Magnús og Valur hurfu á braut?



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
