ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.9° 6m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Fínt orð „álagspróf“

13:15 › 18. september 2009

Fína nafnið yfir könnun Fjármálaeftirlitsins á stöðu banka og sparisjóða er ÁLAGSPRÓF !
Álagspróf á bönkunum í ágúst í fyrra sýndu að allt væri í himnalagi!! Samt hafði mælst aukin áhætta í hækkun vaxtaálags og nánast hafði tekið fyrir aðgang íslensku bankanna að lánsfé erlendis löngu áður. Áhyggjur manna voru miklar og almennar hérlendis sem erlendis og matsfyrirtækin voru á nálum.

Nú stendur fyrir dyrum að stefna danska fjármálaeftirlitinu fyrir vítaverð afglöp í eftirliti sínu með Hróarskeldubanka sem fór á hausinn.

Skyldu Royal Bank of Scotland, HSBC og Nortern Rock hafa gengist undir álagspróf áður en breska ríkið rétti þeim hjálparhönd til þess að lifa af lánsfjárkreppuna?

Ætli þanþol og álag Lehmans banka hafi verið prófað áður en hann varð gjaldþrota?

Nú kemur fram í fréttum að verið sé að skoða vinnubrögð og álagspróf FME á bönkunum fyrir ári síðan. Fáeinum vikum fyrir hrun sýndu mælingar FME að  allt væri í lagi.

Krabbameinssjúklingur getur verið hitalaus. Það segir ekkert um sjúkdóminn hans þótt hitamælirinn sýni eðlilegan hita.

Alltaf ber að spyrja tveggja spurninga um mælingar:
a) Mælir mælitækið (álagsprófið) það sem því er ætlað að mæla?
b) Er mælingin áreiðanleg og nákvæm?

Flaut FME sofandi að feigðarósi?



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?