Páll Hreinsson, formaður sannleiksnefndar Alþingis, ætlar að segja þjóðinni slæmar fréttir í skýrslu um bankahrunið 1. nóvember næstkomandi.
Þá verður búið að skrifa 10 bækur um hrunið og birta velflestar lánabækur bankanna.
Slæmu fréttirnar sem fjölmiðlarnir segja hins vegar á næstu mánuðum er best lýst með símtali sem ég átti við karlmann á miðjum aldri fyrir helgina. Manninn þekki ég ekki neitt.
Sagan sem hann sagði mér í símann er eftirfarandi:
- Hann var búinn að missa ævisparnað sinn í bankahruninu. Það gerðist þegar gjaldmiðilinn féll, lánin hækkuðu upp úr öllu valdi og fasteignaverðið tók að falla.
- Hann missti vinnuna fyrir fjórum mánuðum og hefur ekki tekist að fá aðra vinnu, eyddi þó 10 þúsund krónum í hringingar eftir atvinnuauglýsingum og ábendingum um vinnu í eitt skiptið, en án árangurs.
- Hann vonaðist til að geta lagað skuldastöðuna þegar vaxtabæturnar kæmu í byrjun ágúst. Þær voru teknar í meðlagsskuld sem tekin var að safnast upp, meðal annars vegna veru erlendis um tíma.
- Viðskiptabankinn hótar nú að setja hann á vanskilaskrá. Það yrði í fyrsta skipti á ævinni sem hann lendir í slíku.
- Hann á ekki til hnífs og skeiðar nú og hafði ekkert fengið almennilegt að borða í fjóra daga.
- Hann grét sárt í símann.
Engin von.
Þetta eru slæmu fréttirnar sem fjölmiðlarnir segja á næstu mánuðum...
Blogg
Virkilega slæmu fréttirnar
18:14 › 9. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
