ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.9° 6m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Hvað kom fyrir Samfylkinguna?

15:53 › 8. ágúst 2009

Forysta Samfylkingarinnar þarf sárlega á stuttu og snörpu námskeiði í almannatengslum að halda. Hvorki Jóhanna, Össur né aðrir ráðherrar Samfylkingarinnar mega vera að því að tala við þjóðina vegna þess að þau eru svo upptekin við að bjarga henni.

Misstu þau af einhverju? Er það ekki hluti starfans að tala við þjóðina á erfiðustu stundum í lífi hennar? Gefa henni von? Heyra Jóhönnu, Össur eða þau hin tala af sannfæringu, leggja allt undir, vera gagnsæ og ærleg?

Jóhanna forsætisráðherra kemur nú bókstaflega fyrir sem fjölmiðlafælin. Össur vill ekkert láta á sér kræla fyrr en öll stóru málin eru í höfn, þannig lítur þetta út að minnsta kosti.

Hvað hefur komið fyrir þau? Hvernig stendur á því að Steingrímur J. Sigfússon, formaður VG, fær með degi hverjum æ sterkari ímynd sem leiðtogi þjóðarinnar? Hann hefur sýnt undravert úthald, en á honum mæðir endurreisn bankanna, niðurskurður í ríkisfjármálum og skattahækkanir, Icesave-málið, já og jafnvel ESB-málið hefur hann varið fyrir Samfylkinguna og lofar samstarfið við hana.
Steingrímur J. kemur fyrir sem ærlegur heilindamaður sem leggur allt í sölurnar fyrir sannfæringu sína.

Samfylkingarforystan fær á sama tíma æ meiri blæ baktjaldastjórnmálanna sem þjóðin vill hafa að baki og gleyma. Stjórnmálastarf sem Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkurinn skópu í næði á áratuga löngum valdaferli sem nú á drýgstan þátt í að þjóðin lifir í hörmung.

Þetta er óskiljanlegt. Jafnaðarmannaflokkur sem talar um gagnsæið og mærir það en lætur Steingrím J. og VG um að sýna það í verki. Frammistaða Steingríms J. í Kastljósþætti fyrir helgina verður lengi í minnum höfð. Meira að segja harðir pólitískir andstæðirngar hans höfðu á orði að hér væri sá leiðtogi sem þjóðin þyrfti. Leiðtogi sem trúir á það sem hann er að gera, stendur og fellur með verkum sínum og vekur von og kjark.

Hvers konar geðlurður eru forystumenn Samfylkingarinnar eiginega? Er þeim við bjargandi? Er ekki rétt að Samfylkingarforystan rifji upp merkinguna í orðinu "leiðtogi" á tímum þegar vonin þverr og þjóðina sárvantar leiðsögn út úr Icesaveógöngum sem öðrum ógöngum. Enhvern sem "togar" þjóðina á "leið".
Eða er það að verða einboðið að Steingrímur J. taki brátt við sem forsætisráðherra?









ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?