Nú hefur Ögmundur Jónasson heilbrigðisráðherra svarað kjallaragrein minni þar sem ég gerðist formálalaust svo djarfur að líkja honum við Bjart í Sumarhúsum, frægustu sögupersónu Halldórs Laxness (sjá DV 5. ágúst og http://ogmundur.is/). Kallaði Ögmund "Bjart í Grímshaga" en við Grímshaga í Reykjavík er heimili Ögmundar.
Ögmundur heldur líkingunni áfram og vill ekki verða barinn þræll á Rauðsmýri (les ESB) frekar en Bjartur í Sjálfstæðu fólki. "Bjartur í Sumarhúsum er í huga margra tákngervingur hins óraunsæja draumóramanns sem ber höfðinu við steininn. Í stað þess að beygja sig undir kaldhamraðan veruleikann í mannheimum og í náttúrunni segir hann hvoru tveggja stríð á hendur. dæmdur til að mistakast," skrifar Ögmundur.
Án þess að fara frekar yfir mótrök Ögmundar og andmæli vil ég vitna milliliðalaust í niðurlag meistaraverksins um Sjálfstætt fólk eftir Nóbelskáldið. Er þar komið sögu að Bjartur er að flytja í heiðina aftur, rúinn efnislegum gæðum, ásamt Ástu Sóllilju einkadóttur sinni sem er með tæringu og tvö ungabörn, og ömmunni:
"Enn einu sinni höfðu þau brotið bæ fyrir einyrkjanum, þau eru söm við sig öld frammaf öld, og það er vegna þess, að einyrkinn heldur áfram að vera samur við sig öld frammaf öld. Stríð í útlöndum getur stælt í honum bakfiskinn ár og ár, en það er aðeins sýndarhjálp; blekkíng; einyrkinn kemst ekki úr kreppunni um allar aldir, hann heldur áfram að vera til í hörmung, eins leingi og maðurinn er ekki mannsins skjól, heldur versti óvinur mannsins. Líf einyrkjans, líf hins sjálfstæða manns, er í eðli sínu flótti undan öðrum mönnum sem ætla að drepa hann. Úr einum næturstað í annan verri."
Hversu lengi á íslenska þjóðin að vera í sporum einyrkjans? Er þörf á því? Er öldungis víst að íslensk þjóð verði sem "barinn þræll á Rauðsmýri" þótt hún semji sig að öðrum þjóðum?
Má ég svo bara minna á þessi ummæli Guðbergs Bergssonar rithöfundar.
Blogg
Ögmundur og einyrkinn
21:36 › 6. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
