Hvar birtist eftirfarandi og hvenær?
„Það skýtur skökku við að á ríflega 100 dögum eftir eitt mesta efnahagshrun vestræns ríkis á friðartímum var enginn kallaður til ábyrgðar af hálfu Sjálfstæðisflokksins. Þau skilaboð til þjóðarinnar, að enginn beri pólitíska ábyrgð eru röng. Hér dugir séríslensk skilgreining á pólitískri ábyrgð ekki. Pólitísk ábyrgð snýst ekki um að kjörinn fulltrúi eigi að sitja sem fastast þrátt fyrir mistök hans sjálfs eða undirmanna, heldur hið gagnstæða. Að standa upp og fara þegar áföll verða þótt engin lög hafi verið brotin af viðkomandi er siður sem þarf að komast inn í íslenska stjórnmálahefð. Menn þurfa að láta framtíðarhagsmuni njóta vafans og ekki láta sína persónu vera fyrir.“
Svar: Textinn er úr skýrslu endurreisnarnefndar Sjálfstæðisflokksins sem birt var í mars síðastliðnum, fyrir landsfund flokksins.
Nú eru liðnir 310 dagar frá „einu mesta efnahagshruni vestræns ríkis á friðartímum“.
Hefur Sjálfstæðisflokkurinn kallað einhvern til ábyrgðar?
Blogg
Enginn ber ábyrgð 310 dögum eftir bankahrun
11:25 › 5. ágúst 2009
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
