ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.9° 6m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Stjórnarandstaðan í ríkisstjórninni

07:00 › 10. ágúst 2009

Það yrði mikill sigur fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn að fella ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna á Icesave-málinu eftir aðeins þriggja til fjögurra mánaða setu. Þeim er nú í þann veginn að takast að hræða nokkra þingmenn VG til fylgilags við sig gegn frumvarpinu um ríkisábyrgð á því sem eftir kann að standa af Icesave-skuldinni þegar eignum Landsbankans hefur verið komið í verð.

Þannig geta Ögmundur Jónasson, Lilja Mósesdóttir, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir og hugsanlega fleiri þingmenn VG orðið mikilvægustu liðsmenn Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins á næstu dögum og vikum. Þau geta ráðið úrslitum um það hvort gömlu valdaflokkarnir komist aftur til valda og að draumurinn um jarðbundna velferðarstjórn á næstu árum fjúki þar með út í veður og vind. Þau hafa fallið fyrir látlausum áróðri gegn samningum sem þjóðin var í raun búin að skuldbinda sig til þess að gera og hlaut að gera sem siðmenntuð þjóð meðal þjóða.

Á sama tíma vekur einarður og órofa stuðningur Samfylkingarinnar við Icesave-frumvarpið eftirtekt og hefur á sér yfirbragð þeirrar festu sem íslensk þjóð þarf á að halda á vettvangi stjórnmálanna. Óþarft er svo að minnast einu sinni enn á eljusemi og sannfæringarkraft Steingríms J. Sigfússonar formanns VG.

Þreytandi lagastagl um Icesave-samninginn er þýðinarlaust vegna þess að enginn dómstóll er fyrir hendi til þess að skjóta máli þrasgjarnra Íslendinga til. Svo einfalt er það.
Málið er þreytandi og þýðingarlaust að ræða það frekar af annarri mikilvægri ástæðu. Hún er sú að Landsbankinn lét greipar sópa meðal sparifjáreigenda í Bretlandi og Hollandi með fullri vitund og vilja íslenskra stjórnvalda sem komið höfðu á "villta vestrinu" á íslenskum fjármálamarkaði. Þetta stjórnarfar kusu íslenskir kjósendur yfir sig árum saman og komast ekki undan þeirri ábyrgð. Meira að segja létu stjórnvöld það viðgangast fram á mitt síðasta ár að Seðlabankinn og FME heimiluðu gjaldþrota Landsbankanum að taka hundrað milljarða króna að láni sem notaðir voru til að ryksuga íslenska markaðinn af ríkistryggðum verðbréfum. Þau voru síðan veðsett fyrir einn milljarð evra, sem íslenska þjóðin borgar nú vexti af til Seðlabanka Evrópu. Í beinhörðum gjaldeyri.

Hversu mjög sem menn vilja koma allri sök á eigendur bankanna og kúlulánamenn, þá störfuðu þeir undir lausbeisluðu regluverki íslenskra stjórnvalda sem erlendar þjóðir og eftirlitsstofnanir horfðu forviða á. Þessi stjórnvöld störfuðu í umboði kjósenda. Þau hlustuðu ekki. Þau ráðfærðu sig ekki við aðrar þjóðir. Þau unnu í þágu bankanna eftir að öll rauð ljós blikkuðu og réðu sér meðvirka embættismenn með rétt flokksskírteini. Sumir þeirra seldu meira að segja hlutabréf sín í bönkunum á sama tíma og vinir þeirra í stjórnarráðinu töldu almenningi trú um að allt væri í lagi. Gegn íslensku þjóðinni.

Á sama hátt og það yrði mikill pólitískur sigur fyrir Sjálfstæðisflokkinn að fella ríkisstjórnina á Icesave-málinu yrði það að mikill sigur fyrir ríkisstjórnina að ná því í höfn. Því ef það gerist verður sennilega fátt um jafn stór mál næstu misserin sem stjórnarandstaðan gæti hagnýtt sér til þess að fella ríkisstjórnina. Tap Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins yrði stórt vegna þess að þá væri eins víst að hægt og bítandi kæmist á meiri festa á stjórn Samfylkingar og VG, jafnvel yfir lengri tíma en eitt kjörtímabil. 

Icesave-frumvarpið fer ekki í gegn um þingið nema með fullum stuðningi beggja stjórnarflokkanna. Stjórnarandstöðuflokkarnir leggja nú allt í sölurnar til að fella ríkisstjórnina með Icesave-málið að vopni. Stjórnarflokkarnir geta ekki reitt sig á stuðning úr stjórnarandstöðunni.
Því þurfa nokkrir þingmenn VG að færa umtalsverðar fórnir vilji þeir áframhaldandi ríkisstjórn Samfylkingar og VG.

Hið hlálega við Icesave-málið er vitanlega það, að ef til þess kemur verður það fyrsta verk nýrrar ríkisstjórnar undir forystu Sjálfstæðisflokksins að afla meirihlutafylgis við nokkurn veginn óbreyttan Icesave-samninginn á þingi. Það verður fróðlegt að sjá til dæmis þingmenn Borgarahreyfingarinnar styðja slíka ríkisstjórn. 

Ný ríkisstjórn yrði nauðugur einn kostur að samþykkja Icesave- samninginn enda hafa hvorki Sjálfstæðisflokkurinn né Framsóknarflokkurinn bent á neinar aðrar raunhæfar lausnir. Allt lagastaglið og ofstopinn gagnvart Bretum, Hollendingum og jafnvel Norðurlandaþjóðunum er gagnslaust þras þjóðar sem kom sjálfri sér á kaldan klaka.

Um þetta ættu Ögmundur, Lilja, Guðfríður Lilja og þau hin í VG-þingflokknum að hugsa. Hrein og ómenguð hagfræði og hreinar og fagrar hugsjónir eru yfileitt frekar óhreinar í hörðum heimi stjórnmálanna.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?