Dúddi Bei skrifaði eftirfarandi inn á spjallrás eyjunnar eftir að Davíð Oddsson, formaður Heimastjórnarflokksins, bærði á sér í viðtali við upplýsingafulltrúa flokksins Agnesi Bragadóttur:
...
"Ég er svo glaður yfir því að Davíð sé kominn til bjargar að ég get ekki sofnað.
Fór út að ganga og fylltist bjartsýni fyrir hönd lands og þjóðar.
Auðvitað situr Davíð ekki bara hjá og horfir á allt fara til fjandans.
Ég er svo stoltur yfir því að vera Sjálfstæðismaður og standa réttu megin í lífinu og hafa svona þróað innæi á hvað sé mér og mínum fyrir bestu.
Davíð átti ENGAN þátt í hruninu enda löngu hættur í pólitík og nú kemur í ljós að hann hafði varað við þessu margoft. Það hlaut að vera enda var maðurinn Seðlabankastjóri og vissi sínu viti. Kommarnir hlustuðu ekki þá en hlusta kannski núna.
Biðjum Davíð auðmjúklega afsökunnar á þeirri ranglátu meðferð sem hann hefur fengið frá stórum hluta þjóðarinnar. Gott fólk, sýnið auðmýkt og viðurkennið að þið skutuð sendiboðann og fáum hann, Davíð, til að leiða endurreisnina.
Það er okkar eina von. Ég veit ekki hvað er best að gera en Davíð veit það. Ef það er að loka landinu og borga ekki Ice-Save þá er það bara þannig.
Davíð veit...og Davíð veit best. Nú þarf ég ekki að hugsa um þetta meira því meisarinn er kominn aftur."
.........
Nú geta Sigmundur Davíð, Þór Saari og Bjarni Ben og órólega deildin í VG gengið í Heimastjórnarflokkinn með Davíð, Agnesi og Óskari Magnússyni (útgáfustjóra sægreifanna) og bjargað þjóðinni frá bölinu sem aðrir en Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn kölluðu yfir þjóðina.
Og svona í leiðinni: Þeir sem telja að regluverk Evrópska efnahagssvæðisins um tryggingar á bankainnistæðum eigi ekki við um kerfishrun bankakerfis heillar þjóðar ættu að hafa það hugfast, að deilur Íslendinga við Breta og aðrar nágrannaþjóðir snúast um það hvort þjóðin (ríkið) eigi að bera ábyrgð á innistæðum í EINUM banka, Landsbankanum. Ég veit ekki til þess að íslenskur almenningur sé látinn borga út innistæður annarra íslenskra banka í nágrannalöndunum.
Að öðru leyti vil ég benda á þessa greiningu.



















Það er mikilvægt að þjóðin fái til þess tækifæri á þessu kjörtímabili að greiða atkvæði um nýja stjórnarskrá. Það mál er hafið yfir flest önnur dægurmál sem hátt fara í ... 
