ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.9° 6m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Bjartur í Grímshaga

23:30 › 29. júlí 2009

„Gjaldið sem Íslendingar greiða nú er gjaldið fyrir að það að standa einir,“ sagði Uffe Ellemann Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Dana, í Berlingske Tidene 14. október síðastliðinn.


Athugasemd Uffe Ellemanns ætti að vera eldheitum vinstrigrænum, sem hafa skömm á kapítalismanum og meintu ofríki ESB, nokkurt umhugsunarefni.  
Uffe Ellemann rekur hversu duglegir Íslendingar hafi verið. “Það er leitt að allir vinir mínir á Íslandi skuli vera komnir í þessa klípu... Íslendingar vinna meira en flestir aðrir og fara miklu nær því en aðrar Norðurlandaþjóðir að vera sjálfum sér nægir. Svo eru þeir haldnir sjálfstæðisþörf sem einangrar þá á sama tíma og þeir þarfnast samtöðu með efnahagslegu og pólitísku samfélagi við aðrar þjóðir. „Hugsið ykkur ef Ísland hefði verið í Evrópusambandinu og með evruna þegar markaðirnir frusu...“
Jón Bjarnason, ráðherra á vegum VG, virðist varla geta fylgt samþykktum Alþingis um aðildarumsókn um ESB. Nokkrir þingmenn VG til viðbótar fylgja honum að málum.
Ögmundur Jónasson, annar ráðherra VG, ritar grein á vefsíðu sína um vini Íslands. “Allt Icesave málið er kennslubókardæmi í ofríki,” segir hann og bætir við: “Látum hótanir þvert á móti verða til þess að herða okkur í ásetningi um að komast út úr vandræðum okkar af eigin rammleik. Um hjálpina að utan hef ég einnig miklar og vaxandi efasemdir í efnahagslegu samhengi.”


Fyrirvararnir
Enginn veit á þessari stundu hver stuðningur VG verður við Icesave-frumvarpið á Alþingi. Það er væntanlega háð þeim fyrirvörum sem verið er að smíða við frumvarpið um ríkisábyrgðina.
En eitt þurfa einkum ráðherrarnir Ögmundur og Jón að vita: Því meiri sem andstaða þeirra við ríkisábyrgðina á Icesave reikningunum er, því meiri er hættan á stjórnarslitum. Jóhanna Sigurðardóttir og Samfylkingin öll er einhuga í ESB-málinu og hún mun aldrei fórna því fyrir eitt eða neitt. Jóhanna þarf ekki að fara á fund forseta og kalla eftir þingrofi og kosningum. Hún gæti leitað til Sjálfstæðisflokksins um stuðning við Icesave í því augnamiði að raska ekki ESB málinu. Þegar á reynir styður Sjálfstæðisflokkurinn Icesave frumvarpið, líklega með hjásetu. Slíkur er þrýstingur atvinnurekenda á flokkinn um að lenda málinu. Og þegar hér er komið sögu verður Bjarna Benediktssyni, Illuga Gunnarssyni og Þorgerði Katríni Gunnarsdóttur, Ólöfu Nordal og fleiri þingmönnum flokksins varla meint af því að styðja bæði málin, ESB og Icesave með fyrirvörum. Þingið ræður, geta þau sagt og horft beint framan í Ögmund og Jón.


Nær lýðræðisástin yfirhöndinni?
Þetta er mikið alvörumál fyrir VG enda stappar nærri klofningi í flokknum. Forystan verður að gera það upp við sig hvort hún vill stjórna áfram með Samfylkingunni og taka stefnuna á norræn velferðarstjórnmál eftir gríðarlegt  skipbrot frjálshyggjunnar eða hvort hún ætli að dæma sig til útlegðar úr stjórnarráðinu vegna tortryggni í garð annarra þjóða og einstrengingslegra hugmynda um fullveldi. Ögmundur veit vel að aukin þjóðernis- og fullveldistrú getur leitt til takmarkana á viðskiptafrelsi þjóða í millum. „Að þessu sinni er verðugt að hugleiða hvort hið algera sjálfstæði leiði ekki til þess að takmarka verði verslunarfrelsið. Eins og málum er háttað nú er enginn sterkur sem stendur einn,“ sagði Uffe Ellemann í áðurnefndri grein sinni í Berlingske.


Vilji VG halda í stjórnarsamstarfið, er snjallast fyrir ráðherra flokksins að nota ekki framkvæmdavaldið í áróðursstríði gegn löggjafarvaldinu. Þingið mun afgreiða Icesave með fyrirvörum sem VG þarf að sætta sig við rétt eins og þingið hefur sagt sitt um ESB-málið og afgreitt það. Ögmundur er lýðræðissinni og hann er maður sem vill skýran aðskilnað framkvæmda- og löggjafarvalds. Hann vill ráðherraræðið burt. Þess vegna mun hann auðmjúklega beygja sig undir vilja þingsins í Icesave málinu þegar þar að kemur hvað svo sem líður tortryggni hans gagnvart samvinnu við aðrar þjóðir. 
(DV 29. júlí 2009)


 



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?