ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 10.9° 6m/s SSE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Get ekki orða bundist Ólafur

07:59 › 26. júlí 2009

Kæri Ólafur Arnarson, þjóðfélagsrýnir og höfundur ágætar bókar um hrunið, "Sofandi að feigðarósi".

Ég get ekki orða bundist  eftir að hafa lesið varnarræðu þína á pressunni.is.
Í fyrsta lagi finnst mér þú sýna vanstillingu þegar þú segir mig vera "málpípu spillingar" þótt ég nefni að ekki hafi verið færðar sönnur á það að Ársæll Hafsteinsson í skilanefnd Landsbankans beri þá ábyrgð á Icesave sem þú vilt vera láta. Það þarf einfaldlega að sýna fram á slíkt. Ég hef ekki gert það en ég veit vel hvaða ábyrgðarstöðu hann hafði í Landsbankanum fyrir hrun. Ég veit ekki hvort hann lagði á ráðin um Icesave og get lítið fullyrt um það að óathuguðu máli. Það er það eina sem sagt er í úttektinni í DV. Ég geri engar athugasemdir við neitt annað sem þú hefur um hann að segja.
Ég kann því illa að vera kallaður málpípa spillingar og þú veist að ég er það ekki.  
Ég vil minna þig á að ég var áreiðanlega fyrstur manna til að fara ofan í saumana á kunningja-, flokks- og starfstengslum skilanefndarmanna. Ég vil benda þér sérstaklega á grein í DV 11. febrúar sl. 

Í greininni í DV um helgina "Hin nýja valdastétt" bendi ég á þessháttar tengsl sem mér er gjarnt. Greinilega fipaðist mér eitthvað. Eiginkona þín er víst föðursystir Hreiðars Más Sigurðssonar, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, en ekki systir Hreiðars Más. Biðst ég velvirðingar á því.
Ég nefndi líka að þú og Erlendur Hjaltason forstjóri Exista eru systrasynir.
Ég spyr: Eru vensl, tengsl og skyldleiki eitthvert feimnismál í þínum huga? Ef þau hafa þýðingu í þínum huga gagnvart spillingu, þá hafa slík tengsl alltaf þýðingu, líka þegar spilling kemur ekki við sögu. Það er hollt að hafa það í huga.

Að draga fram þessháttar tegsl þín við Kaupþing og Exista er ekki illa meint. Þetta er spurning um gagnrýna hugsun og að vera sjálfum sér samkvæmur til enda. Sú er viðleitnin sem á að sýna. Mér finnst að þú eigir að hjálpa þjóðinni til að skilja klíkuþjóðfélagið og uppræta það eins og hægt er frekar en að pakka í vörn. Það verður aðeins gert með gagnsæi.  Þú hefðir verið vel settur hefðir þú gert grein fyrir tengslum þínum og útskýrt meginsjónarmið þín þegar þú hófst þjóðfélagsrýni þína á ný. Maður er það sem maður gerir.

Mér finnst til dæmis að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, eigi skilyrðislaust að gera grein fyrir því inni á vefsíðu Alþingis að félagið "Stuðningsmenn Bjarna Benediktssonar" er vistað heima hjá Einari Erni Ólafssyni forstjóra Skeljungs og flokksbróður hans á Einimel 18 í Reykjavík en ekki heima hjá honum sjálfum í Garðabæ. Hann á að útskýra hvers vegna hann hefur þann háttinn á.

Fyrir alla muni Ólafur. Þú þarft ekki annað en að lesa einn eða tvo fimmtudagskjallara í DV eftir mig til þess að sjá að við erum hjartanlega sammála um að spillingin má ekki rannsaka sjálfa sig.

ps. Ég hef svolítið velt því fyrir mér hvort sumir þeirra sem tóku þátt í hrunadansi bankanna og mökuðu krókinn þá geti ekki unnið gott verk nú reknir áfram af sektarkennd og ríkum vilja til að vinna þjóð sinni gagn. 
En ég get ekki dæmt um þetta. Mannlífið er stundum of flókið.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?