ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 11.0° 7m/s SE
Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson

Jóhann Hauksson er upplýsingafulltrúi ríkisstjórnar Samfylkingarinnar og Vinstri grænna og hefur verið það frá því í janúar 2012. Hann hefur með hléum bloggað um stjórnmál og samfélagsmál á dv.is frá opnun vefsins árið 2007, lengst af sem blaðamaður. Jóhann á feril frá árinu 1986 sem frétta- og blaðamaður. Hann var lengst af fréttamaður, dagskrárstjóri og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV, síðar blaðamaður á Fréttablaðinu, DV og dv.is og „Morgunhani“ á Útvarpi Sögu.

Var hægt að ætlast til þess?

15:21 › 22. júlí 2009

Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins og Sigurjón Þ. Árnason, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, eru vel menntaðir menn á fimmtugsaldri. Jónas lauk lögfræðiprófi frá HÍ árið 1992 og Sigurjón lauk gráðu í vélaverkfræði sama ár frá sama skóla. Jónas átti eftir að verða einn helsti eftirlitsmaður með íslenskum fjármálastofnunum þegar hann varð forstjóri Fjármálaeftirlitsins árið 2005. Sigurjón var tveimur árum áður orðinn bankastjóri Landsbankans um það leyti sem bankinn var einkavæddur.


Jónas Fr. átti sem sagt að hafa eftirlit með Sigurjóni frá árinu 2005, en það var áður en Sigurjón fékk vitrun og lagði upp í Icesave ævintýrið.


Svo vill til að Jónas Fr. var formaður Vöku (hægrimanna) og stúdentaráðs 1989 til 1990. Hann átti þá eftir að taka sæti í stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna SUS, en þar sat hann í stjórn Reykjavíkurdeildarinnar 1991 til 1993.  Jónas Fr. var sem sagt með Flokksskírteinið upp á vasann.


Svo vill til að Sigurjón Þ. Árnason var formaður Vöku (hægrimanna) og stúdentaráðs 1990 til 1991. Hann var líka innvígður Sjálfstæðismaður með Flokksskírteinið upp á vasann.


Var yfirleitt hægt að ætlast til þess að Jónas Fr. , eftirlitsmaður og forstjóri hjá FME hefði eftirlit með Sigurjóni Þ. hjá Landsbankanum?


Hvað vissi svo þessi innvígði karlaklúbbur sjálsfstæðismanna,  Jónas Fr. Jónsson, Guðlaugur Þór Þórðarson (formaður SUS 1993-1997), Steinþór Gunnarsson, starfsmaður Landsbankans og stjórnarmaður í SUS í formannstíð Guðlaugs, Björn Ársæll Pétursson, einnig starfsmaður Lansdbankans, og fleiri um 25 milljóna króna styrk  Landsbankans  til Sjálfstæðisflokksins í árslok 2006? Er ekki haft fyrir satt að Sigurjón Þ. hafi einn tekið ákvörðun um stykrinn fræga?


Hver sagði eftirfarandi:
„Ég hef aldrei þrætt fyrir það að vera í sambandi við Sigurjón Þ. Árnason, en ef ég hefði haft áhuga á að gera það vegna styrks þá hefði ég bara haft samband beint við Sigurjón, það hefði verið mjög einfalt fyrir mig,“
Svar: Guðlaugur Þór Þórðarson í samtali við mbl.is.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?